Fólk hvatt til að skoða tölvupóstinn sinn
„Það gæti verið talsvert af miðum sem er þarna í boði,“ segir Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri Knattspyrnusambands Íslands, í samtali við mbl.is.
Þúsund miðar á leik Íslands og Frakklands í 8-liða úrslitum Evrópumótsins fóru í sölu í hádeginu og seldust þeir strax upp. Að sögn Klöru munu þeir Íslendingar sem keypt hafa miða á leiki Íslands á EM fá tölvupóst í dag sem mun innihalda upplýsingar um það hvernig hægt verður að kaupa á miða gegn Frakklandi.
Þeir Íslendingar sem eru því í miðasölugagnagrunni UEFA munu því geta keypt miða á sérstök svæði á Stade de France þar sem Íslendingar verða.
Fótbolti.net greinir frá því að að einhverjir stuðningsmenn séu þegar farnir að fá póst frá UEFA og því er fólk hvatt til að skoða tölvupóstinn sinn sem fyrst.
Við bendum öllum á að það gæti ennþá átt von á tölvupósti frá UEFA varðandi kaup á miðum á leik Íslands og Frakklands 😉
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) June 28, 2016
Þ.e. þeir sem hafa keypt miða á leiki Íslands á mótinu!
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) June 28, 2016