fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Sport

Adam Johnson játar að hafa misnotað barn

Réttarhöld yfir leikmanni Sunderlands hófust í dag- – Neitar tveimur ákæruliðum af fjórum

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 10. febrúar 2016 13:04

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Adam Johnson, leikmaður Sunderlands og enska landsliðsins í knattspyrnu, viðurkenndi fyrir rétti fyrr í dag að hafa misnotað barn en réttarhöld yfir Johnson standa nú yfir.

Frá þessu greina breskir miðlar en réttarhöld vegna málsins hófust í Bradford á Englandi í morgun.

Johnson, sem er 28 ára gamall og spilar fyrir enska úrvalsdeildarliðið Sunderland, er meðal annars ákærður fyrir að hafa tekið þátt í kynferðislegum athöfnum með 15 ára stúlku.

Johnson er ákærður í fjórum liðum og játaði hann sök í tveimur þeirra fyrir réttarhöldin í morgun. Hann játaði að hafa misnotað barn og að hafa tælt stúlku undir lögaldri.

Johnson neitar sök í hinum tveimur ákæruliðunum sem snúast um að hann hafi ítrekað brotið gegn sömu stúlkunni.

Johnson er fæddur í Sunderland á Englandi en hóf ferill sinn sem atvinnumaður í knattspyrnu hjá Middlesbrough. Þaðan fór hann til Manchester City áður en Sunderland keypti hann fyrir 10 milljónir punda árið 2012.

Johnson hefur einnig spilað 12 leiki fyrir enska landsliðið í knattspyrnu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

KR fékk miðjumann úr sænsku úrvalsdeildinni

KR fékk miðjumann úr sænsku úrvalsdeildinni
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Mjólkurbikarinn: Víkingar lentu óvænt undir en svöruðu vel fyrir sig – KA áfram eftir framlengingu

Mjólkurbikarinn: Víkingar lentu óvænt undir en svöruðu vel fyrir sig – KA áfram eftir framlengingu
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Vonar að United tapi 5-0 eftir hegðun eins leikmanns – ,,Hann ætti að skammast sín“

Vonar að United tapi 5-0 eftir hegðun eins leikmanns – ,,Hann ætti að skammast sín“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Liverpool þarf að taka stóra ákvörðun í sumar: Er hann ekki nóg fyrir liðið? – ,,Þurfum að spyrja spurninga“

Liverpool þarf að taka stóra ákvörðun í sumar: Er hann ekki nóg fyrir liðið? – ,,Þurfum að spyrja spurninga“
433Sport
Í gær

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United
433Sport
Í gær

Goðsögn Manchester United hefði viljað fá að spila þarna á ferlinum

Goðsögn Manchester United hefði viljað fá að spila þarna á ferlinum