Keppni hefur verið frestað á Dubai Masters-mótinu í golfi
Kylfuberi á Dubai Masters-mótinu í golfi, sem er liður í Evrópumótaröð kvenna, hné niður á fyrsta hring sem leikinn var í morgun. Tvíeykið var á 13. braut þegar maðurinn, Max Zechmann, féll. Hann naut aðstoðar lækna á staðnum en var svo fluttur úr sjúkrahús í skyndi. Þar var hann úrskurðaður látinn. Hann var kylfuberi Anne-Lise Caudal.
Mótinu hefur verið frestað vegna þessa, í virðingarskyni. Fyrsta hring verður fram haldið á morgun. „Allir aðstandendur Evrópumótaraðarinnar eru harmi slegnir vegna þessara fregna. Við höfum ákveðið að láta staðar numið í dag, í virðingarskyni,“ kemur fram í tilkynningu frá mótshöldurum.
A sad day for Anne-LiseCaudal as her caddie collapses on the course and later dies #DubaiLadiesMasters @OMEGAGolfDubai pic.twitter.com/fqsY8Kqna4
— Getty Images Sport (@GettySport) December 7, 2016
Maðurinn hafði lagt golfpokann á hilluna og bjó í Dúbaí. Hann var vinsæll kylfusveinn og vann meðal annars með kylfingunum Markusi Brier og Marcel Siem á ferli sínum.
Kylfingarnir á mótinu eru á vef Daily Mail sagðir vera í áfalli.
Anne-Lise Caudal er 32 ára Frakki. Hún hefur í tvígang unnið mót innan Evrópumótaraðarinnar, 2008 og 2012, og er því framarlega í flokki kylfinga.
This is the official statement on today's tragedy at Dubai Ladies Masters by @LETgolf and @OMEGAGolfDubai pic.twitter.com/2Tv0Ze20Yd
— Joy Chakravarty (@TheJoyofGolf) December 7, 2016