fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Sport

Frank Lampard hrósar syni Eiðs Smára: „Hann hreyfir sig alveg eins og þú“

Eiður birti myndband af glæsilegu marki Sveins Arons í landsleik með U19 ára landsliðinu

Einar Þór Sigurðsson
Miðvikudaginn 26. október 2016 14:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Frank Lampard, markahæsti leikmaður í sögu Chelsea, er hrifinn af knattspyrnuhæfileikum Sveins Arons Guðjohnsen. Sveinn Aron er sem kunnugt er sonur Eiðs Smára Guðjohnsen.

Eiður birti myndband á Instagram-síðu sinni af glæsilegu marki sem Sveinn Aron skoraði fyrir íslenska U19 ára landsliðið á dögunum. Markið kom í leik á móti Lettlandi og bar Ísland sigur úr bítum, 2-0. Sveinn Aron skoraði glæsilegt mark í fyrri hálfleik og kom Íslandi í 1-0. Hann fékk sendingu inn fyrir vörn Letta og skoraði úr mjög þröngu færi utarlega úr vítateignum.

Fjölmargir hafa skrifað athugasemdir við færslu Eiðs og lætur Frank Lampard, góður vinur Eiðs Smára, ekki sitt eftir liggja. „Hann hreyfir sig alveg eins og þú. Gaman að sjá hann standa sig vel,“ segir Lampard. Fleiri taka í sama streng og Lampard og segja að margt í leik Sveins Arons minni á leik Eiðs.

Eiður og Lampard urðu góðir vinir þegar þeir léku saman hjá Chelsea. Sveinn Aron, sem er fæddur árið 1998, er leikmaður Vals en hann gekk í raðir félagsins í sumar frá HK. Hann á átta leiki að baki fyrir U19 ára landsliðið þar sem hann hefur skorað þrjú mörk. Þá lék hann níu leiki með U17 ára landsliðinu.

Færslu Eiðs má sjá hér að neðan:

My boy? @sveinngudjohnsen for Iceland U19 vs LatvIa U19

A video posted by Eidur Gudjohnsen (@eidurgudjohnsen) on

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Starfið í töluverðri hættu eftir niðurlægingu vikunnar

Starfið í töluverðri hættu eftir niðurlægingu vikunnar
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Fær óvænt tækifærið aðeins 34 ára gamall

Fær óvænt tækifærið aðeins 34 ára gamall
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Hvetur United til að horfa í óvænta átt: Harðhausinn aftur heim? – ,,Gæti smellpassað“

Hvetur United til að horfa í óvænta átt: Harðhausinn aftur heim? – ,,Gæti smellpassað“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United
433Sport
Í gær

Zidane hvattur til að taka við United

Zidane hvattur til að taka við United
433Sport
Í gær

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði