fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Sport

Ensku liðin raða sér í toppsætin

Listi yfir upphæðir sem félög hafa eytt í leikmenn undanfarin sex ár – Þrjú ensk lið á toppnum

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 26. október 2016 22:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ensku félögin Manchester City, Chelsea og Manchester United bera höfuð og herðar yfir önnur félög þegar kemur að eyðslu fjármuna í leikmenn síðustu sex árin. CIES Football Observatory hefur tekið saman heildareyðslu liða úr stærstu fimm deildum Evrópu. Sex stærstu liðin á Englandi eru öll á meðal þeirra fimmtán liða sem mestum peningum hafa eytt í leikmenn frá árinu 2010.

Allt árið um kring eru settar fram vangaveltur í formi frétta um yfirvofandi félagaskipti leikmanna. Aðaltíminn er yfir sumarið en ekki er laust við að sumum stjórunum leiðist þetta tímabil. Þannig sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, í sumar að hann gæti ekki beðið eftir að félagaskiptaglugginn lokaði. Hann sagði að menn einblíndu allt of mikið á það frekar en að horfa á hvernig lið tækju framförum með æfingum og leikskipulagi.

Þó að hægt sé að kaupa bestu leikmenn heims fyrir peninga er það ekki ávísun á árangur. Það sannaði Leicester á síðustu leiktíð og Atletico Madrid leiktíðina 2013/2014.

Listinn hér kemur örugglega engum sérstaklega á óvart. Manchester City hefur eytt 130 milljónum punda meira í leikmenn síðustu sex árin en nokkurt annað lið. Dæmi um leikmenn sem liðið hefur keypt undanfarin misseri eru Kevin De Bruyne (55 milljónir punda), Raheem Sterling (44 milljónir punda), Nicolas Otamendi (32 milljónir punda) og Leroy Sane (37 milljónir punda).

Listinn tekur ekki til þeirra fjárhæða sem sömu félög hafa fengið fyrir að selja leikmenn. Hér á síðunni má hins vegar einnig sjá hvaða félög hafa fengið hæstar upphæðir fyrir sölu leikmanna á umræddu sex ára tímabili. En hér eru þau lið sem hafa keypt leikmenn fyrir hæstu upphæðirnar undanfarin sex ár.

Félög sem hafa eytt mestum peningum í leikmenn 2010–2016

Félag Land Upphæð
Man City England £867
Chelsea England £737
PSG Frakkland £585
Liverpool England £561
Real Madrid Spánn £545
Juventus Ítalía £523
Roma Ítalía £453
Inter Ítalía £438
Atletico Madrid Spánn £438
Arsenal England £394
Tottenham England £387
Napoli Ítalía £370
Bayern Munchen Þýskaland £369
Monaco Frakkland £313
Wolfsburg Þýskaland £299
Valencia Spánn £289
Dortmund Þýskaland £288
AC Milan Ítalía £285

Upphæðir eru í milljónum punda.

Félög sem hafa fengið mest fyrir að selja leikmenn 2010–2016

Félag Land Upphæð
Liverpool England £374
Valcencia Spánn 366
Juventus Ítalía 352
Benfica Portúgal 351
Porto Portúgal 324
Atletico Madrid Spánn 319
Tottenham England 313
Roma Ítalía 311
Real Madrid Spánn 306
Chelsea England 303
Sevilla Spánn 296
Monaco Frakkland 287
Barcelona Spánn 250
Udinese Ítalía 247
Southampton England 227
Inter Ítalía 226
Napoli Ítalía 224
Genoa Ítalía 221
Man City England 209
Wolfsburg Þýskaland 203
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Slot staðfestir viðræður við Liverpool

Slot staðfestir viðræður við Liverpool
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Málverk stjörnunnar vekur mikla athygli: Byrjaður að reyna fyrir sér sem listamaður – ,,Sá aðili hringdi aldrei í mig aftur“

Málverk stjörnunnar vekur mikla athygli: Byrjaður að reyna fyrir sér sem listamaður – ,,Sá aðili hringdi aldrei í mig aftur“