Völtuðu yfir Spánverja í úrslitaleiknum
Þjóðverjar urðu í dag Evrópumeistarar í handbolta karla eftir glæsilegan sigur á Spánverjum í úrslitaleik, 24-17 .
Það voru ekki margir sem bjuggust við því að Þjóðverjar færu langt á mótinu, sérstaklega í ljósi mikilla meiðsla sem herjað hafa á lykilmenn. Dagur Sigurðsson er sem kunnugt er þjálfari þýska liðsins og eru handboltaspekingar á einu máli um að hann hafi unnið kraftaverk með því að koma þýska liðinu svona langt.
Sigur þýska liðsins var í raun aldrei í hættu og náðu Þjóðverjar frumkvæðinu snemma í leiknum sem þeir létu aldrei af hendi. Vörn þýska liðsins var ógnarsterk með Andreas Wolff í miklum ham í markinu. Þá var sóknarleikurinn hraður og skipulagður. Þjóðverjar náðu mest níu marka forystu í seinni hálfleik.