Guðni Tómasson færir sig yfir á Fréttatímann
Guðni Tómasson, listfræðingur, hefur sagt skilið við menningarfréttaþáttinn Víðsjá á Rás 1, en hann hefur haft umsjón með þættinum frá því síðasta haust.
Guðni mun flytja sig um set á næstunni og gerast blaðamaður á Fréttatímanum, sem er í miklum vexti um þessar mundir.
Í samtali við DV sagðist Guðni ekki skilja við RÚV í illu heldur hafi honum einfaldlega boðist ný áskorun og ákveðið að reyna sig í blaðamennskunni.