Sagan af Bláa hnettinum fer á fjalirnar í haust – Fullt hús í skráningu fyrir áheyrnarprufur
Borgarleikhúsið leitar nú að 22 börnum til að taka þátt í uppsetningu á Sögunni af bláa hnettinum eftir Andra Snæ Magnason en leikstjórn verður í höndum Bergs Þórs Ingólfssonar. Stefnt er að því að frumsýningu þann 17. september næstkomandi en í dag fóru fram skráningar fyrir áheyrnaprufur leiksýningarinnar þar sem fjöldi hæfileikaríkra barna mætti til leiks.
DV.is var á staðnum og en óhætt er að fullyrða að vandasamt verk bíði leikstjórans Bergs Þórs. Við ræddum við nokkrar af stjörnum framtíðarinnar sem mættar voru til að skrá sig.
Þegar DV náði tali af Arney var hún búin að bíða í skamma stund í röð fyrir utan Borgarleikhúsið til að skrá sig. Aðspurð segir hún þetta vera í fyrsta skipti sem hún skráir sig í slíka prufu. Hún hafði verið búin að lesa Söguna af bláa hnettinum og var yfir sig spennt fyrir leiksýningunni.
Hinn átta ára gamli Hallur hafði einnig beðið í röð fyrir utan Borgarleikhúsið ásamt mömmu sinni í skamma stund. Hann var spenntur fyrir leiksýningunni, en hann hefur aldrei áður skráð sig í prufu fyrir leikrit. Hann hafði lesið Söguna af bláa hnettinum og fannst sýningin hljóma spennandi.
„Nei, þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég fer í prufu, ég fór í prufu fyrir Óvita þegar það voru prufur fyrir það,“ segir hin tólf ára gamla Líneik Þula, sem var mætt í Borgarleikhúsið til að skrá sig í prufur fyrir sýninguna. Hún hafði ekki verið búin að lesa söguna en þekkir samt innihald sögunnar. Henni þykir sýningin hljóma spennandi.