Sagan Bangsi litli í sumarsól fjallar í stuttu máli um Bangsapabba og Bangsa litla sem verða fyrir því óláni að leggjast í vetrardvala uppi á þaki óperuhúss. Erillinn í og við bygginguna vekur þá um hávetur og í framhaldinu villast þeir í leikfangabúð. Þar verður Bangsapabbi viðskila við Bangsa litla og framhaldinu upphefst mikið ævintýri.
Það sem er sérstakt við söguna og skapar henni sérstöðu í samanburði við aðrar barnabækur eru myndirnar. Þær standa einar og sér og þekja stærstan hluta sögunnar. Hvert einasta smáatriði er úthugsað og börnin hafa einstaklega gaman af því að finna bangsana tvo á hverri opnu sem leiðir lesandann áfram úr snjó og slabbi um borð í skemmtiferðaskip og inn í frumskóginn svo eitthvað sé nefnt.
Höfundur bókarinnar, Benjamin Chaud, er einn ástsælasti teiknari og barnabókahöfundur Frakka. Saga hans
um Bangsa litla er grípandi, yfirgripsmikil og teikningarnar setja algjörlega punktinn yfir i-ið.