Umræða um veiðigjöld er búin að hleypa öllu í bál og brand á þinginu á lokadögum þess eins og svo oft áður. Stjórnarflokkarnir hyggjast lækka veiðigjöld um tæpa 3 milljarða, úr 11 milljörðum í átta undir þeim formerkjum að verið sé að bæta hag lítilla og meðalstórra útgerða.
Heimildir innan úr röðum Vinstri grænna herma að frumvarpið sem meirihluti atvinnuveganefndar lagði fram sé önnur útgáfa af frumvarpi sem Sjálfstæðismenn smíðuðu og gekk mun lengra í lækkun veiðigjalda. Vinstri græn sættust ekki á það og vildu reyna á málamiðlun, niðurstaðan var þá að lækka veiðigjöld um þrjá milljarða og að frumvarpið yrði lagt fram af atvinnuveganefnd þar sem Vinstri græn fara með formennsku.
Ef þetta er allt rétt þá sést bersýnilega hverjir ráða ferðinni í ríkisstjórninni. Það má kalla það Samvinnustjórnmál 101 að ýta á eftir djörfu frumvarpi um umdeilt mál og bíða svo eftir að samstarfsflokkurinn, sem er alltaf tilbúinn að leita að málamiðlun til að halda öllum góðum, taki við málinu og eyði sinni pólitísku innistæðu til að berjast fyrir þínu máli. Talandi um auðblekkt VG.