fbpx
Miðvikudagur 02.júlí 2025
Fréttir

Eiginkona Sindra strokufanga er flugmaður og hefur verið yfirheyrð: „Bráðum geturu hent mér úr flugvélinni“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 18. apríl 2018 12:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á Facebook-síðu eiginkonu Sindra Þórs Stefánssonar strokufanga má sjá að hún hefur undanfarin misseri stundað flugnám og er ljóst af nýjustu myndum að hún er langt komin með námið. RÚV greinir frá því að hún hafi verið yfirheyrð ásamt fjölda fólks en Gunnar Schram, yfirlögregluþjónn á Suðurnesjum, fullyrti í samtali við Vísi í gær að Sindri hafi átt vitorðsmann í flótta sínum frá landinu.

Hér verður ekkert fullyrt um hvort eiginkona Sindra hafi nokkuð með flóttan að gera en þó má ætla að hún hafi þekkt flugbransann vel í gegnum nám sitt. Flugfélög eru til að mynda ekki öll eins ströng á því að vegabréfi sé framvísað við innritun. Í því samhengi má benda á að WOW air var gagnrýnt í fyrra fyrir að krefjast vegabréfs þó flogið væri innan Schengen.

Líkt og hefur verið greint frá þá flúði Sindri land með vél Icelandair klukkan 07:34 til Svíþjóðar og lenti á Arlanda-flugvellinum í gær. Ekki er talið að hann hafi framvísað fölsuðum skilríkjum. RÚV greinir frá því að eiginkona Sindra hafi verið búsett erlendis og DV hefur fengið það staðfest frá bæði Icelandair og WOW air að hún hafi ekki starfað hjá flugfélögunum.

Flest allar myndir sem eiginkona Sindra hefur birt á Facebook síðustu mánuði tengjast flugnámi hennar. Í mars í fyrra birti hún mynd af sér við eins hreyfils flugvél og segir „Fyrsta flug sem pilot in command“. Sindri eiginmaður hennar skrifar athugasemd og vísar í fallhlífastökk sem virðist hafa haft hug hans undanfarið: „Þu ert snillingur, til hamingju með árangurinn.. Bráðum geturu hent mér úr flugvélinni.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Sverrir um ungu tæknitrúðana sem hanna gervigreind – „Þeir tala raunar eins og það sé þeim bókstaflega lífsspursmál að tortíma störfum fólks“

Sverrir um ungu tæknitrúðana sem hanna gervigreind – „Þeir tala raunar eins og það sé þeim bókstaflega lífsspursmál að tortíma störfum fólks“
Fréttir
Í gær

Telja að Trump dragi sig í hlé sem sáttasemjari á milli Rússlands og Úkraínu

Telja að Trump dragi sig í hlé sem sáttasemjari á milli Rússlands og Úkraínu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hraunað yfir Gunnar Smára og allt á suðupunkti hjá sósíalistum – „Þetta er svo vitlaust að það er bara hlægilegt“

Hraunað yfir Gunnar Smára og allt á suðupunkti hjá sósíalistum – „Þetta er svo vitlaust að það er bara hlægilegt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kona sem flýði blokkina í Írabakka eftir ónæði í sjö ár – „Ég kvartaði næstum daglega í Félagsbústaði“

Kona sem flýði blokkina í Írabakka eftir ónæði í sjö ár – „Ég kvartaði næstum daglega í Félagsbústaði“