fbpx
Miðvikudagur 06.ágúst 2025
Fréttir

Þóranna lætur íslensk fyrirtæki heyra það: „Veistu, nei. Þetta er komið gott“ – Neytendur ekki í góðgerðarstarfsemi

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 28. nóvember 2018 09:46

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þóranna K. Jónsdóttir, MBA og markaðssérfræðingur, segir að ekkert fyrirtæki, engin verslun og enginn framleiðandi eigi rétt á viðskiptum okkar. Skiptir þá engu máli hvort um er að ræða íslensk eða erlend fyrirtæki. Neytendur séu ekki í góðgerðarstarfsemi ekkert frekar en fyrirtæki.

Þóranna skrifar athyglisverða grein um þetta í Markaðinn í dag undir yfirskriftinni: Ég versla ekki við fyrirtæki heima.

„Í gegnum árin höfum við séð ýmsar herferðir sem miða að því að fá fólk til að versla heima og velja íslenskt. Við heyrum umfjöllun um að við eigum að styðja íslenska framleiðslu, meðal annars bændur. Ekki bara með viðskiptum, heldur jafnvel með opinberum styrkjum og niðurgreiðslum. Veistu, nei. Þetta er komið gott. Það á ekkert fyrirtæki, engin verslun og enginn framleiðandi rétt á viðskiptum okkar.“

Þóranna segir að á sama tíma og fyrirtæki hér á landi hvetji viðskiptavini til að versla í heimabyggð séu gæðin hjá þeim léleg og verðin hærri.

„Nokkur fyrirtæki í mínum heimabæ hafa gert mig verulega pirraða í gegnum árin með plakötum í gluggum, greinum í bæjarblöðum og væli úti í bæ um að fólk eigi að versla í heimabyggð. Á sama tíma eru gæðin hjá þeim léleg, verðin hærri en hjá samkeppnisaðilunum, þjónustan vægast sagt skelfileg og markaðssetningin nánast engin. Orkunni sem fer í þennan heimaáróður væri betur varið í að bæta gæðin, verðin og þjónustuna, og læra að markaðssetja almennilega til þess að ná í viðskiptavini.“

Þóranna segist ekki einu sinni ætla að byrja að tala um vöruþróun og almennilega markaðssetningu á til dæmis lambakjöti.

„Neytendur eru ekki í góðgerðastarfsemi. Ekkert frekar en fyrirtækin eru í góðgerðastarfsemi. Þetta eru einfaldlega viðskipti. Það á enginn rétt á viðskiptum annarra. Þú verður að vinna þér þau inn. Grundvöllur markaðsfræðanna er að mæta þörfum neytenda,“ segir Þóranna sem bætir við að rannsóknir sýni að fyrirtæki sem horfa á hlutina frá sjónarhóli viðskiptavinanna og nálgast þá þaðan ná betri árangri en önnur.

„Sá sem kemur með besta svarið þegar viðskiptavinurinn spyr: „Hvað fæ ég út úr því?“ stendur uppi sem sigurvegari. Þetta er einfalt og í anda Kennedys: Ekki spyrja hvað viðskiptavinurinn getur gert fyrir þig, spurðu hvað þú getur gert fyrir viðskiptavininn. Nú þegar íslensk fyrirtæki standa frammi fyrir stöðugt harðnandi erlendri samkeppni þá einfaldlega verða þau að fara að læra þetta. Það er að duga eða drepast. Þú átt ekki rétt á því að ég skipti við þig. En að öllu jöfnu: ef að gæðin, verðin, þjónustan og markaðssetningin eru jafngóð og hjá hinum, þá eru allar líkur á því ég kjósi að versla heima. En ég versla ekki heima – nema að fyrirtækin heima hafi unnið sér það inn.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Högg í maga Valsara
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Dularfullt mál í Fellabæ – Búið að skera hring í rúðuna – „Þetta er stór undarlegt“

Dularfullt mál í Fellabæ – Búið að skera hring í rúðuna – „Þetta er stór undarlegt“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Segir samkeppni skorta á lánamarkaði og hagnaður bankanna komi úr vösum viðskiptavina

Segir samkeppni skorta á lánamarkaði og hagnaður bankanna komi úr vösum viðskiptavina
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Barn féll í sjóinn við Reynisfjöru

Barn féll í sjóinn við Reynisfjöru