fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
Fréttir

Einn handtekinn við Ýmishúsið: Veittist að fulltrúa Stofnunar múslima

Einar Þór Sigurðsson
Miðvikudaginn 1. júní 2016 12:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan handtók einn mann við Ýmishúsið í hádeginu. Hálfgerð pattstaða hefur ríkt við húsið í morgun en Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði á dögunum að Menningarsetur múslima, sem haft hefur aðsetur í húsinu um langa hríð, skyldi borið út.

Í frétt RÚV kemur fram að maðurinn sem var handtekinn hafi veist að fulltrúa Stofnunar múslima, sem krafðist útburðarins, með steypustyrktarjárni. Var hann handtekinn í kjölfarið eins og meðfylgjandi myndir bera með sér.

Fulltrúar menningarsetursins reyndu að varna lásasmið, sem kallaður var að húsinu í morgun, aðgang að húsinu. Sýslumanni var síðar veittur aðgangur að húsinu og hefur fulltrúi Menningarsetursins rætt við lögreglu og fulltrúa sýslumanns.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Par á Austurlandi ákært fyrir að halda dreng nauðugum

Par á Austurlandi ákært fyrir að halda dreng nauðugum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dómur þyngdur yfir Ásgeiri Þór fyrir jólaskotárásina á Hvaleyrarholti – Skaut sex skotum að 9 ára stúlku og föður hennar

Dómur þyngdur yfir Ásgeiri Þór fyrir jólaskotárásina á Hvaleyrarholti – Skaut sex skotum að 9 ára stúlku og föður hennar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Hólmfríður óttast um líf sitt á bráðamóttökunni – „Get ekki orða bundist lengur“

Hólmfríður óttast um líf sitt á bráðamóttökunni – „Get ekki orða bundist lengur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Batt miklar vonir við formennsku Guðmundar í SFS – „Hann er af allt öðru sauðahúsi heldur en hinir sýnist mér á öllu“

Batt miklar vonir við formennsku Guðmundar í SFS – „Hann er af allt öðru sauðahúsi heldur en hinir sýnist mér á öllu“