fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

Ekki sátt við mömmu eða pabba

Kolbrún Bergþórsdóttir
Sunnudaginn 3. september 2017 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Því miður semur ekki öllum vel við foreldra sína, heldur ekki stórstjörnum. Hér eru nokkur dæmi.

Faðir söngkonunnar yfirgaf móður hennar þegar dóttir þeirra var tveggja ára gömul. Adele hefur aldrei fyrirgefið honum að hafa farið frá fjölskyldu sinni. Fyrr á þessu ári, þegar hún tók við Grammy-verðlaunum, þakkaði hún umboðsmanni sínum og sagði: „Við höfum verið saman í tíu ár og ég elska þig eins og þú værir pabbi minn. Ég elska þig svo mikið. Ég elska ekki pabba minn.“
Adele Faðir söngkonunnar yfirgaf móður hennar þegar dóttir þeirra var tveggja ára gömul. Adele hefur aldrei fyrirgefið honum að hafa farið frá fjölskyldu sinni. Fyrr á þessu ári, þegar hún tók við Grammy-verðlaunum, þakkaði hún umboðsmanni sínum og sagði: „Við höfum verið saman í tíu ár og ég elska þig eins og þú værir pabbi minn. Ég elska þig svo mikið. Ég elska ekki pabba minn.“
Leikkonan hefur ekki átt mikil samskipti við móður sína á seinni árum. „Þetta er það erfiðasta í lífi mínu. Við getum ekki bara ekki átt samleið,“ segir leikkonan sem hefur þó veitt móður sinni ríkulega fjárhagsaðstoð.
Drew Barrymore Leikkonan hefur ekki átt mikil samskipti við móður sína á seinni árum. „Þetta er það erfiðasta í lífi mínu. Við getum ekki bara ekki átt samleið,“ segir leikkonan sem hefur þó veitt móður sinni ríkulega fjárhagsaðstoð.
Foreldrar leikkonunnar, Goldie Hawn og Bill Hudson, skildu þegar hún var tæplega tveggja ára. Samskipti hennar við föður sinn eru lítil sem engin og hún lítur á sambýlismann móður sinnar til áratuga, Kurt Russell, sem hinn raunverulega föður sinn.
Kate Hudson Foreldrar leikkonunnar, Goldie Hawn og Bill Hudson, skildu þegar hún var tæplega tveggja ára. Samskipti hennar við föður sinn eru lítil sem engin og hún lítur á sambýlismann móður sinnar til áratuga, Kurt Russell, sem hinn raunverulega föður sinn.
Aniston fokreiddist þegar móðir hennar skrifaði bók um samband þeirra. Samband þeirra var mjög stirt en þrátt fyrir það studdi leikkonan móður sína fjárhagslega síðustu árin sem hún lifði. Þegar móðir hennar lést árið 2016 kom í ljós að hún hafði breytt erfðaskrá sinni og ekki arfleitt hina frægu dóttur sína að neinu.
Jennifer Aniston Aniston fokreiddist þegar móðir hennar skrifaði bók um samband þeirra. Samband þeirra var mjög stirt en þrátt fyrir það studdi leikkonan móður sína fjárhagslega síðustu árin sem hún lifði. Þegar móðir hennar lést árið 2016 kom í ljós að hún hafði breytt erfðaskrá sinni og ekki arfleitt hina frægu dóttur sína að neinu.
Foreldrar barnastjörnunnar úr Home Alone skildu þegar hann var fjórtán ára gamall. Hann fór í mál við foreldrana til að koma í veg fyrir að þeir gætu ráðstafað þeim auði sem hann hafði fengið  fyrir leik sinn. Culkin hefur ekki haft samband við föður sinn síðan. Á síðasta ári sagðist faðir hans ekki lengur líta á hann sem son sinn.
Maculay Culkin Foreldrar barnastjörnunnar úr Home Alone skildu þegar hann var fjórtán ára gamall. Hann fór í mál við foreldrana til að koma í veg fyrir að þeir gætu ráðstafað þeim auði sem hann hafði fengið fyrir leik sinn. Culkin hefur ekki haft samband við föður sinn síðan. Á síðasta ári sagðist faðir hans ekki lengur líta á hann sem son sinn.
Meg Ryan lokaði á öll samskipti við móður sína þegar móðirin gagnrýndi þáverandi eiginmann hennar, leikarann Dennis Quaid. Í endurminningabók sinni segir móðirin að leikkonan sé alls ólík þeirri geðugu konu sem sjáist á hvíta tjaldinu. „Í raunveruleikanum er hún kaldlyndur og grimmur yfirgangsseggur,“ sagði móðir Meg Ryan.
Meg Ryan Meg Ryan lokaði á öll samskipti við móður sína þegar móðirin gagnrýndi þáverandi eiginmann hennar, leikarann Dennis Quaid. Í endurminningabók sinni segir móðirin að leikkonan sé alls ólík þeirri geðugu konu sem sjáist á hvíta tjaldinu. „Í raunveruleikanum er hún kaldlyndur og grimmur yfirgangsseggur,“ sagði móðir Meg Ryan.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður
Fókus
Í gær

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta