fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fókus

The Rock endurvekur Baywatch

Ströndin er aftur örugg

Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 27. maí 2017 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kvikmyndin Baywatch er nú frumsýnd um allan heim og á Íslandi í næstu viku, 31. maí, en hún er byggð á samnefndri þáttaröð frá níunda og tíunda áratug síðustu aldar. Í aðalhlutverkum eru Dwayne „The Rock“ Johnson, Zac Efron, Prianka Chopra og Kelly Rohrbach auk Davids Hasselhoff og Pamelu Anderson sem léku í sjónvarpsþáttunum. Stikla myndarinnar lofar góðu fyrir aðdáendur strandvarðanna og því tilvalið að líta aðeins yfir upphaf og sögu Baywatch-ævintýrisins auk helstu leikara fyrr og nú.

Baywatch-þættirnir voru frumsýndir 23. apríl 1989 á sjónvarpsstöðinni NBC, en teknir úr sýningu eftir aðeins eina þáttaröð (22 þætti), bæði vegna lélegs áhorfs og þess að að stúdíóið GTG varð gjaldþrota.

Aðalleikari þáttanna, David Hasselhoff, taldi hins vegar að þættirnir ættu frekari möguleika og ásamt höfundum og framleiðendum þáttanna kom hann þeim aftur á koppinn og í sýningu 23. september 1991. Alls urðu þáttaraðirnar 11 talsins með 22 þáttum í hverri, samtals 242 þættir. Þættirnir nutu gríðarlega vinsælda á árunum 1991–2001, þó meira á alþjóðavísu en í Bandaríkjunum.

Sögusvið þáttanna var ekki flókið; starf og líf strandvarða í Kaliforníu, samskipti þeirra og hætturnar sem steðja þeim og strandgestum. Algengasta björgunaraðferð í þáttunum var björgun fólks frá drukknun, en hættum eins og jarðskjálftum, hákarlaárásum og fjöldamorðingjum var hent reglulega inn í handrit þáttanna svona til að krydda þá aðeins.

Þekktasti leikari þáttanna er sjálfur David Hasselhoff (fæddur 17. júlí, 1952), sem gengur undir gælunafninu The Hoff, en hann leikur Mitch Buchannon. The Hoff er skráður í Heimsmetabók Guinness sem sá karlmaður sem fengið hefur mest áhorf í sjónvarpi. Hasselhoff hefur reynt fyrir sér í fjölda kvikmynda og sjónvarpsþátta, bæði fyrir og eftir Baywatch-ævintýrið, og þá margoft komið fram sem hann sjálfur, enda best þekktur sem slíkur. Hann hefur reynt fyrir sér á tónlistarsviðinu, með frekar slökum árangri, með raunveruleikaþáttaröð, The Hasselhoffs, ásamt dætrum sínum tveimur sem hætt var með í sýningu eftir aðeins tvo þætti, og ævisaga hans, Making Waves (nema hvað!), kom út árið 2006.
The Hoff Þekktasti leikari þáttanna er sjálfur David Hasselhoff (fæddur 17. júlí, 1952), sem gengur undir gælunafninu The Hoff, en hann leikur Mitch Buchannon. The Hoff er skráður í Heimsmetabók Guinness sem sá karlmaður sem fengið hefur mest áhorf í sjónvarpi. Hasselhoff hefur reynt fyrir sér í fjölda kvikmynda og sjónvarpsþátta, bæði fyrir og eftir Baywatch-ævintýrið, og þá margoft komið fram sem hann sjálfur, enda best þekktur sem slíkur. Hann hefur reynt fyrir sér á tónlistarsviðinu, með frekar slökum árangri, með raunveruleikaþáttaröð, The Hasselhoffs, ásamt dætrum sínum tveimur sem hætt var með í sýningu eftir aðeins tvo þætti, og ævisaga hans, Making Waves (nema hvað!), kom út árið 2006.
Pamela Anderson (fædd 1. júlí, 1967) er þekktust þeirra kvenna sem léku í Baywatch, en hún lék í þeim frá 1992–1997, í alls 110 þáttum. Anderson á einnig metið sem forsíðufyrirsæta tímaritsins Playboy, alls 14 skipti. Einkalífið var löngum stormasamt og sem dæmi má nefna að hún giftist Tommy Lee, trymbli þungarokkhljómsveitarinnar Mötley Crue eftir aðeins fjögurra daga kynni. Ferill hennar hefur ekki verið mikill eftir Baywatch, en Anderson kemur þó reglulega fram bæði í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum, þá oftast í gestahlutverki. Anderson er mikill dýraverndunarsinni og virkur meðlimur PETA-samtakanna.
Sú flottasta Pamela Anderson (fædd 1. júlí, 1967) er þekktust þeirra kvenna sem léku í Baywatch, en hún lék í þeim frá 1992–1997, í alls 110 þáttum. Anderson á einnig metið sem forsíðufyrirsæta tímaritsins Playboy, alls 14 skipti. Einkalífið var löngum stormasamt og sem dæmi má nefna að hún giftist Tommy Lee, trymbli þungarokkhljómsveitarinnar Mötley Crue eftir aðeins fjögurra daga kynni. Ferill hennar hefur ekki verið mikill eftir Baywatch, en Anderson kemur þó reglulega fram bæði í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum, þá oftast í gestahlutverki. Anderson er mikill dýraverndunarsinni og virkur meðlimur PETA-samtakanna.
Einn af þeim sem þreytti áheyrnarprufur fyrir þættina var Leonardo DiCaprio, en Hasselhoff þótti DiCaprio, sem þá var 15 ára gamall, of gamall til að leika son hans og láta Hasselhoff líta út fyrir að vera eldri. Það var því hinn 11 ára gamli Jeremy Jackson sem landaði hlutverkinu. Það er þó óhætt að segja að þessi höfnun hafi ekki haft áhrif á glæstan feril Óskarsverðlaunahafans sem lék í misgóðum hlutverkum í bæði sjónvarpsþáttum og kvikmyndum, þar til hann átti fyrsta stórleikinn í mynd Lasse Hallstrom, What's Eating Gilbert Grape 1993.
Var ekki valinn Einn af þeim sem þreytti áheyrnarprufur fyrir þættina var Leonardo DiCaprio, en Hasselhoff þótti DiCaprio, sem þá var 15 ára gamall, of gamall til að leika son hans og láta Hasselhoff líta út fyrir að vera eldri. Það var því hinn 11 ára gamli Jeremy Jackson sem landaði hlutverkinu. Það er þó óhætt að segja að þessi höfnun hafi ekki haft áhrif á glæstan feril Óskarsverðlaunahafans sem lék í misgóðum hlutverkum í bæði sjónvarpsþáttum og kvikmyndum, þar til hann átti fyrsta stórleikinn í mynd Lasse Hallstrom, What's Eating Gilbert Grape 1993.

Hliðarþáttaröð og kvikmyndir

Hliðarþáttaröðin Baywatch Nights varð að veruleika 1995, sem leiddi til tveggja þáttaraða, alls 44 þátta. Í þeim klæðir Hasselhoff sig í fleiri flíkur og gerist einkaspæjari ásamt félaga sínum úr strandvarðaklíkunni.

Þrjár kvikmyndir sem fóru beint á myndband fylgdu svo í kjölfarið: Baywatch the Movie: Forbidden Paradise (1995), sem fjallaði um ferðalag strandvarðanna til Hawaii, Baywatch: White Thunder at Glacier Bay (1998), þar sem strandverðirnir héldu í siglingu til Alaska, og Baywatch: Hawaiian Wedding (2003), sem var eins konar „reunion“-mynd fyrir þáttaröðina í heild. Hasselhoff lék að sjálfsögðu aðalhlutverkið í hliðarþáttunum og öllum þremur kvikmyndunum og Anderson í þeirri fyrstu og þriðju.

Þekkt þemalag

Þemalag fyrstu þáttaraðarinnar var lagið Save me, flutt af Peter Cetera, einum af forsprökkum hljómsveitarinnar Chicago, og lék Bonnie Raitt á gítar í laginu.

[youtube https://www.youtube.com/watch?v=PK9-XZIu2kg?rel=0&hd=1&wmode=transparent]

Nýtt þemalag var samið þegar þættirnir voru endurnýjaðir með annarri þáttaröð. Lagið I’m Always Here er sungið og samið af Jimi Jamison, söngvara hljómsveitarinnar Survivor.

[youtube https://www.youtube.com/watch?v=MYZVqZn5MSg?rel=0&hd=1&wmode=transparent]

Baywatch fyrir nýja kynslóð

Áform um að endurvekja strandverðina hafa verið á teikniborðinu síðan 2012 og árið 2014 var Johnson fenginn til að leika aðalhlutverkið. Framleiðslufyrirtæki hans, Seven Bucks Productions, er eitt af nokkrum sem standa að myndinni. Tökur hófust síðan í byrjun árs 2016. Það má búast að við sól, strönd og fáklætt fólk í formi eigi eftir að draga nýja áhorfendur jafnt sem eldri aðdáendur í bíó til að sjá myndina, þrátt fyrir að hún hafi fengið misjafna dóma vestanhafs.

Leikarinn Dwayne Johnson (fæddur 2. maí 1972) sem tekur við skýlunni af Hasselhoff er sannkallað hæfileikabúnt, hvort sem er á íþrótta-, framleiðslu- eða leiklistarsviðinu. Hann lék í háskólafótboltanum og vann til verðlauna þar áður en hann fylgdi í fótspor föður síns og varð atvinnumaður í glímu og vann til fjölda verðlauna á farsælum ferli, þar á meðal tíu sem heimsmeistari. Fyrir fyrsta aðalhlutverk hans í kvikmynd, The Scorpion King árið 2002, fékk hann greiddar 5,5 milljónir dollara, sem þá var met sem launagreiðsla fyrir fyrsta aðalhlutverk í kvikmynd. Johnson á eigið framleiðslufyrirtæki, Seven Bucks Production, og leikur hann sjálfur í flestum afurðum þess. Ein af hans nýjustu myndum, The Fate of the Furious, er tólfta tekjuhæsta mynd allra tíma. Árið 2016 var hann hæstlaunaði leikari heims og á lista Time yfir hundrað áhrifamestu einstaklinga heims og 2015 valdi Muscle & Fitness hann sem „Mann aldarinnar.“ Ævisaga hans, The Rock Says, kom út árið 2000 og fór í fyrsta sæti metsölulista vestanhafs.
Grjótharður Leikarinn Dwayne Johnson (fæddur 2. maí 1972) sem tekur við skýlunni af Hasselhoff er sannkallað hæfileikabúnt, hvort sem er á íþrótta-, framleiðslu- eða leiklistarsviðinu. Hann lék í háskólafótboltanum og vann til verðlauna þar áður en hann fylgdi í fótspor föður síns og varð atvinnumaður í glímu og vann til fjölda verðlauna á farsælum ferli, þar á meðal tíu sem heimsmeistari. Fyrir fyrsta aðalhlutverk hans í kvikmynd, The Scorpion King árið 2002, fékk hann greiddar 5,5 milljónir dollara, sem þá var met sem launagreiðsla fyrir fyrsta aðalhlutverk í kvikmynd. Johnson á eigið framleiðslufyrirtæki, Seven Bucks Production, og leikur hann sjálfur í flestum afurðum þess. Ein af hans nýjustu myndum, The Fate of the Furious, er tólfta tekjuhæsta mynd allra tíma. Árið 2016 var hann hæstlaunaði leikari heims og á lista Time yfir hundrað áhrifamestu einstaklinga heims og 2015 valdi Muscle & Fitness hann sem „Mann aldarinnar.“ Ævisaga hans, The Rock Says, kom út árið 2000 og fór í fyrsta sæti metsölulista vestanhafs.
Hin lítt þekkta Kelly Rohrbach (fædd 2. janúar 1990) tekur við flotholtinu af Anderson og leikur C. J. Parker í nýju myndinni.
Hin nýja Parker Hin lítt þekkta Kelly Rohrbach (fædd 2. janúar 1990) tekur við flotholtinu af Anderson og leikur C. J. Parker í nýju myndinni.
Upphaflega var hlutverk glæpamannsins skrifað fyrir karlmann, en það var umskrifað eftir að hin gullfallega og hæfileikaríka Priyanka Chopra (fædd 18. júlí 1982) fékk hlutverkið. Chopra er þekktasta og hæstlaunaða leikkona Indlands og hlutverk hennar í Bollywood-kvikmyndum fjölmörg. Hún var valin Ungfrú Heimur árið 2000, er mikill mannúðarsinni og hefur starfað fyrir UNICEF í fjölda ára. Hún hefur gefið út þrjú lög og árið 2015 var hún fyrsti Asíubúinn til að leika aðalhlutverk í bandarískri þáttaröð, en hún leikur njósnara FBI í þáttunum Quantico, en nýlega var afráðið að taka upp þriðju þáttaröð þeirra.
Skúrkurinn Upphaflega var hlutverk glæpamannsins skrifað fyrir karlmann, en það var umskrifað eftir að hin gullfallega og hæfileikaríka Priyanka Chopra (fædd 18. júlí 1982) fékk hlutverkið. Chopra er þekktasta og hæstlaunaða leikkona Indlands og hlutverk hennar í Bollywood-kvikmyndum fjölmörg. Hún var valin Ungfrú Heimur árið 2000, er mikill mannúðarsinni og hefur starfað fyrir UNICEF í fjölda ára. Hún hefur gefið út þrjú lög og árið 2015 var hún fyrsti Asíubúinn til að leika aðalhlutverk í bandarískri þáttaröð, en hún leikur njósnara FBI í þáttunum Quantico, en nýlega var afráðið að taka upp þriðju þáttaröð þeirra.

Stikla myndarinnar

[youtube https://www.youtube.com/watch?v=eyKOgnaf0BU?rel=0&hd=1&wmode=transparent]
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður
Fókus
Í gær

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta