fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

Stjörnurnar sem komu árið 2016

– Stórmynd tekin upp á Ströndum – Kardashian-klíkan mætti – Bláa lónið alltaf vinsælt

Ritstjórn DV
Laugardaginn 31. desember 2016 21:00

- Stórmynd tekin upp á Ströndum - Kardashian-klíkan mætti - Bláa lónið alltaf vinsælt

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ísland var líkt og síðustu ár vinsælt hjá erlendum stórstjörnum á árinu 2016 sem böðuðu sig í Bláa lóninu eða héldu tónleika fyrir fullum húsum. Erlend kvikmyndaver héldu áfram að notfæra sér stórbrotna íslenska náttúru sem sviðsmynd fyrir stórmyndir frá Hollywood. Sama má segja um ákveðna meðlimi Kardashian-fjölskyldunnar. Aðra vikuna í júlí gátu íslenskir stangveiðimenn rekist á Beckham-fjölskylduna við Langá á Mýrum, hitt eina stærstu samfélagsmiðlastjörnu heims uppi á Langjökli eða setið við hlið Owen Wilson í Leifsstöð.

Batman á Ströndum

Hollywood-leikararnir Ben Affleck og Jason Momoa komu hingað til lands um miðjan október. Bandaríska kvikmyndaverið Warner Bros stóð þá fyrir tökum á ofurhetjumyndinni Justice League á Ströndum. Affleck leikur í henni hlutverk Bruce Wayne, betur þekktur sem Batman, en Momoa ofurhetjuna Aquaman. Þá kom leikkonan Amber Heard einnig hingað en hún fer með hlutverk Meru frá Atlantis. Þegar tökum hér á landi lauk var haldið mikið partí í Djúpavík á Ströndum þar sem leikararnir gistu.

Kim og Kanye

Hjónin Kim Kardashian og Kanye West bættust í hóp Íslandsvina í apríl þegar þau lentu í Keflavík ásamt fríðu föruneyti. Systir Kim, Kourtney, var einnig með í för og ferðaðist hópurinn um Suðurland á sérútbúnum jeppa. Þau heimsóttu meðal annars gróðurhúsið og veitingastaðinn Friðheima, skammt frá Selfossi, og böðuðu sig í Bláa lóninu. Heimsóknin hingað endaði svo í sjónvarpsþáttunum vinsælu, Keeping up with the Kardashians, og myndataka af Kim í flegnum sundbol í Bláa lóninu fór eins og eldur í sinu um netið.

„Ótrúlega fallegt“

Leikarinn Tyrese Gibson, sem fer með hlutverk Roman í Fast and the Furious, var orðlaus yfir náttúrufegurðinni hér þegar hann kom hingað til lands í lok mars. Gibson kom til að leika í myndinni Fast 8 en tökur á henni fóru fram í Mývatnssveit. „Ísland er svo ekta, það er ótrúlega fallegt hérna,“ sagði Gibson í færslu á Instagram.

Hitti Guðna

Leikstjórinn Darren Aronofsky var heiðraður af kvikmyndahátíðinni RIFF við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í október. Hitti hann þar meðal annars Guðna Th. Jóhannesson, forseta Íslands, og rithöfundinn og forsetaframbjóðandann Andra Snæ Magnason. Aronofsky hefur leikstýrt þekktum myndum á borð við Black Swan, The Wrestler og Noah, sem var að hluta til tekin upp hér á landi.

Veiddu í Langá

David Beckham, Victoria Beckham og fjölskylda lentu á Íslandi þann 7. júlí og tóku hjónin Björgólfur Thor og Kristín Ólafsdóttir á móti þeim við komuna til landsins. Óku þau öll á brott á stórum fjallajeppa og voru Björgólfur og David duglegir við að stunda stangveiði dagana á eftir og þá meðal annars í Langá á Mýrum. Fjölskyldan heimsfræga fór einnig í Þríhnúkagíg og naut náttúrunnar í veðurblíðunni.

Fékk afmælisköku

Tónlistarmaðurinn geðþekki Ed Sheeran fagnaði 25 ára afmæli sínu í Gamla fjósinu undir Eyjafjöllum þann 17. febrúar. Þar fékk hann sér steikarsamloku og var mjög viðkunnanlegur við starfsfólk staðarins. Í samtali við Vísi sagði einn starfsmaður Gamla fjóssins að hann hefði gefið Sheeran afmælisköku í tilefni dagsins. Hann var í fylgd með vinkonu sinni og virtust þau skemmta sér mjög vel en þau fóru einnig í Bláa lónið.

Poldark mætti

Íslenska leikkonan Heiða Rúna Sigurðardóttir upplýsti í september að allir helstu leikarar bresku sjónvarpsþáttaseríunnar Poldark hefðu heimsótt hana til Íslands. Þau hefðu heimsótt bóndabæ ömmu hennar og Heiða sýnt þeim helstu ferðamannastaði landsins. Eleanor Tomlinson, Jack Farthing, Kyle Soller og Ruby Bentall fara með helstu hlutverkin ásamt Heiðu.

Borðaði og borðaði

Breski sjónvarpskokkurinn Jamie Oliver var staddur á Íslandi í febrúar. Oliver, sem hafði áður komið til landsins, kíkti þá meðal annars á veitingastaðina Sægreifann, Grillmarkaðinn og Þrjá Frakka. Líklegt er að hann hafi verið að skoða mögulega keppinauta og kynna sér íslenska veitingahúsamarkaðinn en tilkynnt hefur verið að veitingastaður hans muni verða opnaður á Hótel Borg á næsta ári.

Hitti fjölskylduna

Mynd: AKM Images / GSI Media

Owen Wilson kom hingað til lands daginn eftir að Bechkam-fjölskyldan lenti á einkaþotu sinni á Reykjavíkurflugvelli. Bandaríski stórleikarinn kom hingað til lands til að hitta foreldra sína sem voru hér á ferðalagi. Góðvinur hans, Ben Stiller, hefur margoft komið til landsins og lék aðalhlutverk í myndinni The Secret Life of Walter Mitty sem var að stórum hluta tekin upp hér á landi.

Piparsveinninn mætti

Samfélagsmiðlakóngurinn og glaumgosinn Dan Bilzerian lenti á Reykjavíkurflugvelli þann 7. júlí. Hann er einna þekktastur fyrir Instagram-síðu sína þar sem hann deilir myndum af piparsveinslífsstíl sínum. Skellti hann sér í snjósleðaferð upp á Langjökul og gisti á The Diamond Suite á Hótel Keflavík sem er ein dýrasta svíta landsins. Þar eru fimm glæsisvítur sem hægt er að leigja saman eða hverja í sínu lagi. Ein nótt í svítunni kostar um eina milljón króna.

Radiohead og Muse

Ekki má gleyma meðlimum allra þeirra heimsfrægu hljómsveita og tónlistarmönnum sem heimsóttu klakann til að halda tónleika. Radiohead spilaði fyrir fullu húsi á tónlistarhátíðinni Secret Solstice ásamt suður-afrísku hljómsveitinni Die Antwoord. Bresku meðlimir Muse fylltu gömlu Laugardalshöllina og Brian Wilson úr Beach Boys spilaði í Hörpu. Þá komu hingað einnig þau James Morrisson, PJ Harvey, Burt Bacharach, Simply Red og Schoolboy Q.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður
Fókus
Í gær

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta