fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024

Líf og fjör hjá grunnskólabörnum á Ljósanótt

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 30. ágúst 2018 15:50

Myndin tengist fréttinni ekki neitt.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fimm daga lista-og menningarveisla hófst í blíðskaparveðri í Reykjanesbæ í gær með setningu 19. Ljósanætur. Bæjarbúar fylltu skrúðgarðinn í Keflavík í blíðskaparveðri þegar Ljósanæturhátíðin var sett. Grunnskólabörn drógu Ljósanæturfánann að húni sem markar upphaf Ljósanæturhátíðar. Hátíðin nær hápunkti á laugardagskvöld.

Í tilkynningu frá skipuleggjendum kemur fram að setning Ljósanætur hafi verið með nýju sniði þetta árið og er nú orðin að fjölskylduhátíð síðari hluta dags. Það var líf og fjör hjá 2400 börnum sem tóku sér stöðu á lóð Myllubakkaskóla á skólatíma. Í tilkynningu frá skipuleggjendum segir:

„Margt var til gamans gert á setningarhátíðinni og má segja að Ljósanótt hafi beinlínis verið sungin inn. Kór nemenda hóf dagskrá á því að syngja Meistara Jakob á fjórum tungumálum sem og Ljósanæturlag  Ásmundar Valgeirssonar „Velkomin á Ljósanótt“ . Ingó veðurguð tók svo við keflinu og hvatti gesti til söngs svo heyrðist um allan bæ.

Dagskráin í dag

Það sem ber hæst í dagskrá dagsins er opnun fjögurra nýrra sýninga í Duus Safnahúsum; ljósmyndasýningarnar „Eitt ár á Suðurnesjum“ og „Eitt ár í Færeyjum“, Endalaust og „…svo miklar drossíur“. Auk þess sem afsteypa af Súlunni, menningarverðlaunum Reykjanesbæjar eftir Elísabetu Ásberg verður afhjúpuð. Þá verður opnuð í Bókasafni Reykjanesbæjar sýningin „List sem gjaldmiðill“.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Van Dijk vonar að Liverpool ráði landa sinn – ,,Einn af þeim bestu“

Van Dijk vonar að Liverpool ráði landa sinn – ,,Einn af þeim bestu“
Fókus
Fyrir 14 klukkutímum

Diddy do it? – Rappari, athafnamaður eða Epstein rappsenunnar?

Diddy do it? – Rappari, athafnamaður eða Epstein rappsenunnar?
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Málverk stjörnunnar vekur mikla athygli: Byrjaður að reyna fyrir sér sem listamaður – ,,Sá aðili hringdi aldrei í mig aftur“

Málverk stjörnunnar vekur mikla athygli: Byrjaður að reyna fyrir sér sem listamaður – ,,Sá aðili hringdi aldrei í mig aftur“
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Staðfestir að hann sé ekki hættur – Endurkoma á næstunni

Staðfestir að hann sé ekki hættur – Endurkoma á næstunni