fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fókus

Símtal bjargaði Michael Jackson frá dauða

Lilja Katrín Gunnarsdóttir
Fimmtudaginn 14. febrúar 2019 19:00

Móðir tónlistarmannsins bjargaði honum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Poppkóngurinn Michael Jackson svindlaði á dauðanum þann 11. september árið 2001. Michael átti að vera á fundi í Tvíburaturnunum, en eins og flestir vita dundu hryðjuverkaárásir yfir Bandaríkin þennan dag með þeim afleiðingum að turnarnir hrundu eftir að flugvélar flugu á þá.

Það var símtal frá móður hans, Rebbie, sem bjargaði söngvaranum, en hann vakti hálfa nóttina að rabba við hana í símann aðfaranótt 11. septembers og svaf yfir sig morguninn eftir. Því náði hann ekki að mæta á fundinn í turnunum.

Michael Jackson átti að vera á fundi í turnunum.

Sagan af þessum örlagaríka degi kemur úr sjálfsævisögu Jermaines Jackson, Through a Brother‘s Eyes, og kemur fram í skugga frumsýningar á heimildarmyndinni Leaving Neverland á Sundance-kvikmyndahátíðinni, en í myndinni er fjallað ítarlega um meint kynferðisbrot tónlistarmannsins gegn börnum.

Sagt er frá ævisögu Jermaines í fjölmiðlinum Smithsonian Magazine og vitnað í bókina.

„Sem betur hafði ekkert okkar hugmynd um að Michael ætti fund þennan morgun á efri hæðum eins turnsins. Við uppgötvuðum þetta bara þegar að mamma hringdi á hótelið hans til að tryggja að það væri í lagi með hann,“ segir Jermaine í bókinni.

„Hann sagði við hana að hún hefði haldið fyrir sér vöku og því hafi hann sofið yfir sig og misst af fundinum.“

Ef Michael hefði náð á fundinn og látist ásamt hinum 2753 fórnarlömbunum í hryðjuverkárásunum hefði hann verið 43 ára gamall. Hann lést átta árum síðar, árið 2009, þá fimmtugur að aldri.

Heimildarmyndin Leaving Neverland verður sýnd í sjónvarpi í vor, en í henni opna þeir Wade Robson og James Safechuck um meint kynferðisofbeldi sem þeir þurftu að þola af hendi poppkóngsins um árabil.

Á vef The Sun er að finna tímalínu yfir öll skiptin sem Michael Jackson var ásakaður opinberlega um barnamisnotkun. Fram til dauða dags hélt tónlistarmaðurinn ávallt fram sakleysi sínu.

Tímalína The Sun.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður
Fókus
Í gær

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta