fbpx
Þriðjudagur 16.september 2025
433Sport

Guðni neitaði að taka við bónusgreiðslum frá KSÍ eftir HM

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 8. febrúar 2019 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég tel að okkur hafi tekist vel til á þessum tveimur árum,“ sagði Guðni Bergsson, formaður Knattspyrnusambands Íslands, þegar blaðamaður heimsótti hann í höfuðstöðvar KSÍ í vikunni. Starfsfólk KSÍ er á fullu að undirbúa ársþing sambandsins sem fram fer á laugardag.

Þar mun Guðni setja verk sín í dóm aðildarfélaganna. Geir Þorsteinsson er í framboði gegn Guðna og sækist aftur eftir starfinu. Framboð Geirs hefur vakið athygli, enda eru tvö ár síðan að hann kaus sjálfur að láta af störfum og var kjörinn heiðursformaður sambandsins. Taldi hann sig hafa lokið sínum verkum en hlutirnir breyttust fljótt og nú er Geir mættur aftur og sækist eftir gamla starfinu sem Guðni tók við í febrúar árið 2017.

Það vakti athygli þegar Geir Þorsteinsson, þá formaður KSÍ, tók við bónusum eftir Evrópumótið í Frakklandi árið 2016. Um var að ræða bónusa sem samsvöruðu tveggja mánaða launum. Mikil umræða skapaðist um málið.

Aðrir starfsmenn fengu mánaðar laun í bónus. Eftir Heimsmeistaramótið síðasta sumar fékk starfslið KSÍ í Rússlandi bónus, en hvað með Guðna? „Það voru greiddir út bónusar til starfsliðs á EM 2016 og til þáverandi formanns. Síðasta sumar eftir HM fékk starfsfólk KSÍ bónusgreiðslur en þær voru lægri,“ sagði Guðni um malið en hann segist hafa tekið það fram af fyrra bragði að hann vildi ekki fá slíkar greiðslur.

,,Ég taldi það ekki vera eðlilegt að þiggja slíkt og tók ekki bónusa.“

Beðist er velvirðingar á því að röng útgáfa af viðtalinu birtist í helgarblaði DV vegna mistaka.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Sjáðu helstu tilþrif Onana í fyrsta leik í Tyrklandi – Fær mikið lof fyrir frammistöðu sína

Sjáðu helstu tilþrif Onana í fyrsta leik í Tyrklandi – Fær mikið lof fyrir frammistöðu sína
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Rekinn fyrir 89 dögum en er að mæta aftur til starfa

Rekinn fyrir 89 dögum en er að mæta aftur til starfa
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Skrif Gunna Helga um vælukjóa frá Akureyri vekja athygli – „Skiptir auðvitað engu máli núna“

Skrif Gunna Helga um vælukjóa frá Akureyri vekja athygli – „Skiptir auðvitað engu máli núna“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Ætlar ekki að sætta sig við það að vera varaskeifa hjá Liverpool

Ætlar ekki að sætta sig við það að vera varaskeifa hjá Liverpool
433Sport
Í gær

Telja sig geta keypt Grealish á lækkuðu verði næsta sumar

Telja sig geta keypt Grealish á lækkuðu verði næsta sumar
433Sport
Í gær

Guardiola í flokk með Ferguson

Guardiola í flokk með Ferguson