Antonio Conte hefur verið rekinn sem knattspyrnustjóri enska úrvladdieldarfélagsins Chelsea.
Conte yfirgefur Chelsea eftir tvö ár í starfi en hann vann ensku deildina á sínu fyrsta ári á Englandi.
Roman Abramovich, eigandi Chelsea, er ekki þolinmóður maður og fær Conte sparkið eftir slæmt gengi á síðustu leiktíð.
Síðan Abramovich keypti lið Chelsea árið 2003 hefur hann eytt 89 milljónum punda í að reka þjálfara.
Ófáir stjórar hafa fengið sparkið hjá Chelsea og fær Conte til að mynda níu milljónir punda frá félaginu eftir að hafa verið leystur undan samningi.
Það er ótrúlega há upphæð og jafn há uppghæð og Manchester United borgaði fyrir miðjumanninn Paul Pogba frá Juventus.