fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
433Sport

Landsliðsmaður bað Rúrik um að giftast sér: „Omg omg omg omg! Rurik you are so hot cant believe it“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 20. júní 2018 08:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óhætt er að segja að vinsældir Rúriks Gíslasonar aukist dag frá degi. Eins og alþjóð veit hefur fylgjendum hans á Instagram fjölgað margfalt og eru þeir nú orðnir tæplega 600 þúsund.

Liðsfélagar Rúriks í landsliðinu hafa gaman af þessu og nota tækifærið til að skjóta örlítið á félaga sinn. Að öllu gríni slepptu hafa þeir þó sagt að þetta sé gaman fyrir Rúrik enda vinsældirnar lygilegar.

Frederik Schram, markvörður íslenska landsliðsins, sá sér leik á borð í gær og skrifaði athugasemd við nýjustu mynd Rúriks á Instagram. Þar bað Frederik Rúrik hreinlega um að giftast sér.

„Omg omg omg omg! Rurik you are so hot cant believe it. Will you marry me please? If not please answer my dm and follow me back. Rurik í love you so much i am crying and i miss you you are cute and your are handsome.“

Sagði Frederik að Rúrik væru svo heitur að hann tryði því varla og spurði hvort hann vildi giftast sér? Ef ekki, bað hann Rúrik vinsamlegast um að svara skilaboðum sínum og fylgja honum að minnsta kosti á Instagram.

Líklega hefur Frederik verið að gera létt grín að öllum þeim skilaboðum sem Rúrik hefur fengið á Instagram undanfarna daga. Virðist hann í sérstaklega miklum metum hjá stúlkum í Suður-Ameríku.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

KR fékk miðjumann úr sænsku úrvalsdeildinni

KR fékk miðjumann úr sænsku úrvalsdeildinni
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Mjólkurbikarinn: Víkingar lentu óvænt undir en svöruðu vel fyrir sig – KA áfram eftir framlengingu

Mjólkurbikarinn: Víkingar lentu óvænt undir en svöruðu vel fyrir sig – KA áfram eftir framlengingu
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Vonar að United tapi 5-0 eftir hegðun eins leikmanns – ,,Hann ætti að skammast sín“

Vonar að United tapi 5-0 eftir hegðun eins leikmanns – ,,Hann ætti að skammast sín“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Liverpool þarf að taka stóra ákvörðun í sumar: Er hann ekki nóg fyrir liðið? – ,,Þurfum að spyrja spurninga“

Liverpool þarf að taka stóra ákvörðun í sumar: Er hann ekki nóg fyrir liðið? – ,,Þurfum að spyrja spurninga“
433Sport
Í gær

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United
433Sport
Í gær

Goðsögn Manchester United hefði viljað fá að spila þarna á ferlinum

Goðsögn Manchester United hefði viljað fá að spila þarna á ferlinum