Sæmd, Skýjaglópur, Ási grási
EyjanÍ Kiljunni í kvöld fjöllum við um Sæmd, nýja skáldsögu eftir Guðmund Andra Thorsson. Bókin gerist í Reykjavík á seint á 19. öld, en sögupersónurnar eru meðal annarra lærdómsmennirnir Benedikt Gröndal og Björn M. Olsen. Við förum út á Granda þar sem er að finna hús Gröndals – í heldur einkennilegu ástandi. Ólafur Haukur Símonarsson Lesa meira
Varla aðför að Ólafi
EyjanÞað er dálítið bratt hjá Sigrúnu Magnúsdóttur að tala um „aðför“ að forsetanum þótt Steingrímur og Össur skrifi um hann í bókum. Það hefur ekki dulist neinum að í langan tíma hafa verið átök milli forsetans og stjórnmálamanna, þau hófust þegar hann neitaði að skrifa undir fjölmiðlalögin 2004. Mögnuðust svo upp í tíð síðustu ríkisstjórnar. Lesa meira
Flug 401 – Loftleiðir
EyjanÓborganlegar myndir. Flug Loftleiða til New York, þetta er líklega seint á sjöunda áratugnum eða snemma á þeim áttunda. Það vantar upplýsingar. Þetta var á tímanum þegar Loftleiðir voru draumafyrirtæki í huga Íslendinga, upphófst af rammleik flugmanna sem stafaði ævintýraljómi af. Það flaug til Bandaríkjanna og til Lúxemborg, var vinsælt meðal ungs fólks sem vildi Lesa meira
Ef allur ísinn bráðnaði…
EyjanHér eru mikil katastrófufræði sem er forvitnilegt að velta fyrir sér. Hvað ef allur ís á jörðinni bráðnaði? National Geographic setur þetta upp á kortum. Sjávarborð hefur þá hækkað um 216 fet, samkvæmt tímaritinu. Við sjáum hvernig strandlínur hafa breyst. Danmörk er horfin, sem og Flórida og stórir hlutar af austurströnd Bandaríkjanna. Í Egyptalandi heyra Lesa meira
Rómantískir Kraftwerk
EyjanFór á Kraftwerk í gærkvöldi – það var mjög skemmtilegt spil tóna og mynda. En það sem sló mig mest var hvað þessi gamla vestur-þýska raftónlistarsveit er rómantísk. Þarna er fjallað um framtíðarsýn eins og hún var á áttunda áratugnum. Það eru hraðlestir, gírahjól, hraðbrautir þar sem aka um Mercedes Benz bifreiðar og Volkswagen. Samskiptamátinn Lesa meira
Getur 320 þúsund manna þjóð…?
EyjanHallgrímur Helgason birtir þennan mjög svo umhugsunarverða texta á Facebook-síðu sinni: Getur 320 þúsund manna þjóð verið með eigið tungumál? Getur 320 þúsund manna þjóð verið með eigin sjónvarpsrekstur? Getur 320 þúsund manna þjóð verið með eigin listaháskóla? Getur 320 þúsund manna þjóð búið til megastjörnu? Getur 320 þúsund manna þjóð búið til aðra poppstjörnu? Lesa meira
Sá sem segir sannleikann fremur ekki glæp
EyjanÍ Þýskalandi eykst mjög þrýstingur á að bjóða Edward Snowden hæli. Áhrifamenn í flokki Merkels kanslara eru meðal þeirra sem hvetja til þessa. Og það er forvitnilegt að sjá forsíðu nýjasta heftis hins áhrifamikla fréttatímarits Der Spiegel. Kannski hefðum við Íslendingar átt að bjóða honum hingað meðan tækifæri var til – það er varla hægt Lesa meira
Að búa til internetið
EyjanEr hugsanlega hægt að rugla því saman að vera mikið á netinu við að hafa búið til netið? Eins og lesa má hjá Birni Val Gíslasyni féllu þessi orð í Sunnudagsmorgni Gísla Marteins í gær – sá sem þau sagði var þingmaður Pírata, Helgi Hrafn Gunnarsson: „Við sem erum í tölvubransanum og netbransanum við vitum þetta, Lesa meira
Nóvember, nóvember, nóvember
EyjanMaður skyldi ætla að nóvember verði tíðindamikill mánuður í pólitíkinni. Það hefur mikið verið horft til þessa mánaðar. Ef ég skil rétt á að vera von á áliti frá tveimur sérfræðingahópum. Annars vegar er það hópur um lækkun húsnæðislána – og hins vegar hópur um afnám verðtryggingar. Þarna eru komin tvö helstu málin sem ríkisstjórnin Lesa meira
Endalok Facebook?
EyjanNú sjáum við glitta í endalok Facebook. Á þessum tæknitímum sem við lifum á endist ekkert lengi. Unga fólkið hverfur af Facebook, það kýs aðra samskiptamiðla, þar sem það getur verið út af fyrir sig. Foreldrar, ömmur og afar hafa tekið yfir Facebook. Eins og ágætur vinur minn orðar það svo – á Facebook: „Hvaða Lesa meira