Stórar eyður í Íslandsögunni
EyjanÉg fór suður í Keflavík um daginn með Jóni Kalman Stefánssyni – tilefnið er ný skáldsaga hans, Fiskarnir hafa enga fætur. Eitt af því sem við ræddum þarna í gamla heimabænum hans var hveru stórar eyður væru í söguþekkingu og sagnaritun. Til dæmis er það svo að ekki er til neitt sagnfræðirit sem gerir varnarliðinu Lesa meira
Er hægt að breyta lögum sem við fáum gegnum EES – er samningurinn stjórnarskrárbrot?
EyjanÞað er stundum skrítið þegar menn segja A en sleppa því svo að segja B. Þannig er það til dæmis með umræðu undanfarinna ára um Evrópusambandið. Mörg rök sem þar hefur verið beitt duga alveg jafnvel gegn aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu – þaðan sem við þiggjum heilu lagabálkana án þess að hafa neitt um Lesa meira
Tónlist er hollari en íþróttir
EyjanTónlist er hollari en íþróttir, stendur í þessari grein sem birtist á vef YLE, finnska sjónvarpsins. Greinin er á sænsku. Þarna segir að tónlist sé besti vinur heilans og geti opnað heilastöðvar sem séu lokaðar – og einnig geri tónlistin fólk hæft til að fást við önnur verkefni. Greinin byggir á rannsóknum sem hafa farið Lesa meira
Íslendingar, útlent fólk og sturtunektin
EyjanLandinn var með umfjöllun um sturtuvenjur í íslenskum sundlaugum. Reglurnar eru einfaldar, allir skulu baða sig naktir. Konur sér, karlar sér. Ungir og aldnir. Þetta þykir okkur eðlilegt og fólki af sumum þjóðum þykir þetta ekki tiltökumál, til dæmis er Þjóðverjum sama og Skandínövum mestanpart. Þeir eru frekar afslappaðir gagnvart nekt. En fólk frá vesturheimi getur Lesa meira
Hver á gagnagrunninn?
EyjanHelgi Seljan var með merkilega úttekt í Kastljósi á sögu Íslenskrar erfðagreiningar. Það hefur gengið á ýmsu, en umfjöllunin vakti eina stóra spurningu: Hver á gagnagrunninn? Þið getið horft með því að smella hér.
Albert Camus – 100 ár
EyjanÉg held ég hafi ekki verið spenntari fyrir neinum bókum þegar ég var strákur en verkum Alberts Camus. Ég fékk þær að láni á bókasafni Hagaskóla og las, sumt kannski ekki alveg til skilnings: Pláguna, Útlendinginn, Fallið. Þær bækur Camus sem hafa komið út á íslensku. Hann er sennilega ekki í jafn miklum hávegum nú Lesa meira
Litaðar ljósmyndir – Einstein á ströndinni
EyjanÞetta er geysilega skemmtilegur vefur. Þarna má sjá gamlar ljósmyndir, litaðar þannig að þær líta næstum út fyrir að vera nýjar. Einhvern veginn tala þær öðruvísi til okkar með þessum hætti. Einstein á ströndinni. Audrey Hepburn í eldhúsinu. Þessi fræga ljósmynd úr heimskreppunni verður sérkennilega lifandi.
Er hægt að hlusta á Gergiev?
EyjanHér er býsna góð spurning: Getur maður hlustað á hljómsveitarstjóra, sem hefur lýst yfir stuðningi við stefnu Pútíns gegn samkynhneigðum og réttlætt ofsóknirnar gegn Pussy Riot, stjórna Tsjaikovskí og Shostakovits? Tsjaikovskí var samkynhneigður en Shostakovits mátti sæta eilífum ofsóknum frá hendi kúgunarvalds. Spurningin er kannski ekki síður hvort maður nennir að hlusta verk eftir þessi Lesa meira
Afar ósamstæð nefnd
EyjanHafi nokkurn tíma sést nefnd sem er líklegt til að komast að engri niðurstöðu, þá er það hin nýja nefnd um endurskoðun stjórnarskrárinnar undir forystu Sigurðar Líndal. Sigurður er einhver íhaldssamasti maður á Íslandi og fær til fulltingis við sig í nefndinni annan íhaldsmann í gegn, Birgi Ármannsson. En svo eru þarna líka ákafir talsmenn Lesa meira
Víða mjög dýrt að fljúga innanlands
EyjanVísir birtir frétt um konu sem ætlaði að kaupa þrjá miða í innanlandsflugi fram og til baka milli Þórshafnar og Reykjavíkur, en hætti við sökum þess hversu miðarnir voru dýrir. Samanlagt áttu þeir að kosta 157.300. Semsagt rúmlega 50 þúsund krónur á mann, rúmlega 300 evrur. Fólki er brugðið og finnst þetta dýrt – sem Lesa meira