fbpx
Laugardagur 28.júní 2025

Silfuregils

Seðlabankinn í pólitík, segir Sigmundur Davíð

Seðlabankinn í pólitík, segir Sigmundur Davíð

Eyjan
18.11.2013

Ummæli Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra í fréttatíma Stöðvar 2 eru mjög athyglisverð. Sigmundur segir að ákveðnir starfsmenn Seðlabankans séu í pólitík – gegn ríkisstjórninni og skuldaleiðréttingum. Af samhenginu verður varla annað ráðið en að þarna sé Már Guðmundsson seðlabankastjóri meðtalinn. Er að renna upp sá dagur að Sigmundur losar sig við Má?    

Einkafyrirtæki hefði ekki borgað mikið fyrir tillögur hagræðingarhópsins

Einkafyrirtæki hefði ekki borgað mikið fyrir tillögur hagræðingarhópsins

Eyjan
18.11.2013

Þórður Víkingur Friðgeirsson er lektor við Háskólann í Reykjavík og kennir þar meðal annars námskeið í áætlunargerð og áhættustjórnun. Hann hefur gefið út bók á þessu sviði sem nefnist Áhætta, ákvarðanir og óvissa. Þórður skrifar á Facebook-síðu sína um tillögur hagræðingarnefndar – kannski er þarna kominn kjarni máls um þær? „Segjum að þessi hagræðingarhópur hefði Lesa meira

Stefán lögreglustjóri: Minnkandi glæpir

Stefán lögreglustjóri: Minnkandi glæpir

Eyjan
17.11.2013

Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á Höfuðborgarsvæðinu, skrifar grein í nýjasta tölublað Kjarnans þar sem hann skýrir frá því að afbrotum fari mjög fækkandi. Greinin nefnist Dularfulla glæpahvarfið. Stefán segir að þetta eigi við um þjófnaði, innbrot, eignaspjöll og ofbeldi, en það hafi ekki vakið sérstaka athygli hjá fjölmiðlum. Kannski, eins og sagt er, er það ekki Lesa meira

Samtök um hjóllausan lífstíl

Samtök um hjóllausan lífstíl

Eyjan
17.11.2013

Gárungar segja að sigurvegari í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík hafi verið „samtök um hjóllausan lífstíl“. Þátttakan var ekki mikil, svo það á eftir að koma í ljós hvaða hljómgrunn samtökin eiga meðal borgarbúa.  

Frelsun Evrópu og glæpir Sovéthersins

Frelsun Evrópu og glæpir Sovéthersins

Eyjan
17.11.2013

Ég hef löngum verið hugsi yfir hinni svokölluðu frelsun Sovétmanna á Evrópu 1945 og kannski ekki síst hvaða hlutverki hún gegnir í Rússlandi nútímans. Reyndar höfðu Sovétmenn fáum árum áður makkað með Þjóðverjum um að leggja undir sig Eystrasaltslöndin og austurhluta Póllands. Og þeir réðust líka inn í Finnland. Þannig að Sovétríkin byrjuðu stríðsrekstur á Lesa meira

ESB viðræðusinni í oddvitasætið, slæm útkoma kvennanna

ESB viðræðusinni í oddvitasætið, slæm útkoma kvennanna

Eyjan
16.11.2013

Hér eru úrslitin úr prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík. Það vekur athygli að í fyrsta sæti er utanbæjarmaður sem flutti lögheimili sitt tímabundið til Reykjavíkur. Hann er að vísu margreyndur sveitarstjórnarmaður, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Það er umhugsunarvert að Halldór er yfirlýstur stuðningsmaður aðildarviðræðna við Evrópusambandið og var í samningshópi um byggða- og sveitarstjórnarmál í aðildarviðræðunum. Lesa meira

Wilders og Le Pen gegn ESB

Wilders og Le Pen gegn ESB

Eyjan
16.11.2013

Geert Wilders og Marina Le Pen ætla sér að koma upp bandalagi flokka í ysta hægrinu fyrir kosningarnar til Evrópuþingsins á næsta ári. Markmiðið er að eyðileggja Evrópusambandið innan í frá. Flokkar þeirra, hinn hollenski Frelsisflokkur Wilders og Þjóðfylking Le Pen í Frakklandi, njóta mikils fylgis í skoðanakönnunum og þau vilja fá með flokka eins Lesa meira

„Við erum betri en Króatía“

„Við erum betri en Króatía“

Eyjan
15.11.2013

Það hlaut að koma að því  – að farið yrði í að tengja saman leikinn við Króatíu og Evrópusambandið. Króatar eru nýlega gengnir þangað inn. Þetta er eiginlega alveg galið – sjá blogg Heimssýnar. „Við erum betri en Króatía.“ Reyndar eru búið að slá smá varnagla þarna fremst, en honum var bætt við síðar. En Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af