Viðtalið við Sölva
EyjanÞað er þörf á umræðu um skólamál á Íslandi, en hún fær ekki mikið rúm í fjölmiðlum. Það er þversögn – börn eru skóla frá unga aldri, stundum meira en átta tíma á dag. Og við búum í samfélagi sem gerir sífellt meiri kröfur til menntunar – án þess þó að vita glögglega í hverju Lesa meira
Tilikum sendur í útlegð – heim til Íslands
EyjanHáhyrningar eru grimmar skepnur – enda kallast þeir killer whales á ensku. Þeir eru efst í fæðukeðjunni, þ.e. engin önnur dýr í vistkerfi þeirra ógna þeim. Háhyrningar fara í flokkum eins og úlfar, þeir veiða ekki bara fisk sér til matar, heldur lika sjávarspendýr – jafnvel stóra hvali. Háhyrningur eins og Tilikum er ekki góður eða Lesa meira
Er verið að afvegaleiða umræðuna?
EyjanÞingkonan Elsa Lára Arnardóttir skrifar grein í Fréttablaðið í dag. Ég held að þau sem sitja á Alþingi þurfi að gera aðeins meiri kröfur til sjálfra sín varðandi efnistök og framsetningu en þarna birtist. Í greininni segir að „heimilin“ séu orðin óþolinmóð eftir aðgerðum. Nú er það svo að „heimilin“ bíða ekki eftir neinu. Á Lesa meira
Viðtalið í kvöld – skólamálin
EyjanÍ þættinum Viðtalinu sem er á dagskrá Sjónvarpsins í kvöld ræði ég við Sölva Sveinsson, skólastjóra Landakotsskóla. Sölvi er þrautreyndur skólamaður, var áður skólameistari Fjölbrautarskólans í Ármúla og síðar skólastjóri Verslunarskólans. Hann er líka rithöfundur og hefur gefið út bækur um íslenskt mál og málnotkun, til að mynda Táknin í málinu og Sögu orðanna. Eins Lesa meira
Um millistéttina
EyjanÉg ætla að endurbirta hér tvær greinar sem ég hef skrifað á undanförnum mánuðum um millistéttina – af gefnu tilefni. Það er ágætt að létta á skuldabyrði millistéttarinnar og millitekjufólks, en það þarf örugglega miklu til ef á að veita henni upprisu: Drepur græðgin kapítalismann? Því miður er það svo að líklega mun græðgin á Lesa meira
Upprisa millistéttarinnar – en hvað um hinar stéttirnar?
EyjanÞað er ýmislegt merkilegt í orðum Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar um að nú sé komið að „upprisu millistéttarinnar“. Þarna er nefnilega viðurkenning á því að Ísland sé stéttskipt land – og að það þurfi máski að færa fjármagn frá þeim sem meira hafa til þeirra sem minna hafa. Frá yfirstétt til lægri stétta. Því ef er Lesa meira
Hátíð hjá Grikklandsvinum
EyjanÞað er mikil gósentíð hjá áhugamönnum um gríska menningu. Út er komin bókin Grikkland alla tíð, en þetta er sýnisbók með grískum textum, bæði fornum og nýjum, allt frá Hómer til ný-grískra skálda eins og Kavafis, Seferis og Elýtis. Þetta er afskaplega gagnleg og góð bók í ritstjórn Kristjáns Árnasonar sem nýskeð fékk eina æðstu Lesa meira
Brátt hundrað ár frá hildarleiknum mikla
EyjanMaður er strax farinn að sjá í fjölmiðlum merki um að á næsta ári verður þess minnst að hundrað ár eru frá upphafi fyrri heimstyrjaldarinnar. Þessa tilgangslausa blóðbaðs sem reyndist svo afdrifaríkt. Leiddi til byltingarinnar í Rússlandi, Versalasamniganna, uppgangs fasisma og nasisma, og svo kalda stríðsins. Maður veit ekki hvernig heimurinn hefði þróast ef blómaskeiðið Lesa meira
Það er búið að skjóta hann!
EyjanÞórður yfirkennari kom inn, náfölur. Það er búið að skjóta hann! Skjóta hvern? spurði skólastjórinn kuldalega. Kennedy forseta. Í sama vetfangi fylltist kennarastofan af kennurum sem voru að ljúka kennslu og fréttin laust þá hvern af öðrum. Allir söfnuðust kringum útvarpstækið. „Hvað verður um Jacqueline og börnin?“ spurði skólastjórinn hrærður. Sumir spáðu heimsendi. Þeir læddust Lesa meira
Þétting byggðar eða áfrahaldandi úthverfavæðing
EyjanNýr framboðslisti Framsóknar í borginni virðist ætla að setja sig upp á móti aðalskipulaginu sem verið er að samþykkja endanlega í borgarstjórninni. Eitt af því sem hefur komið frá frambjóðendum er að skipuleggja þurfi borgina þannig að búseta nálægt vinnustað sé raunhæfur möguleiki. En það er auðvitað þetta sem verið er að gera í nýja Lesa meira