fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025

Silfuregils

Hvar er íslenska jólamyndin?

Hvar er íslenska jólamyndin?

Eyjan
10.12.2013

Ég er af fyrstu kynslóð barna sem hafði íslenskt sjónvarp. Ég man hvað maður var spenntur á aðfangadag þegar voru sýndar barnamyndir í heila tvo tíma. Það var algjör hátíð. Nú er meira framboð, við getum jafnvel sagt offramboð, og jólamyndir eru sýndar allan desember – þykja núorðið partur af hátíðinni. Maður getur eiginlega ekki Lesa meira

Laufabrauð og Diet Kók

Laufabrauð og Diet Kók

Eyjan
10.12.2013

Ég hef haft þann frekar leiða sið að drekka Diet Kók. Drekk reyndar minna af því en áður, en get upplýst að þegar ég er með bolla í hendinni í sjónvarpi, þá er Diet Kók í bollanum. Þetta er afskaplega óþjóðlegt og í raun mjög púkalegt þegar miðaldra maður á í hlut. En ég hef Lesa meira

Framsókn og plebbisminn

Framsókn og plebbisminn

Eyjan
10.12.2013

Gunnar Smári segir að plebbísk viðhorf séu skýring á fylgi Framsóknarflokksins. Plebbismi getur birst með ýmsum hætti – Gunnar Smári nefnir danska Þjóðarflokkinn og norska Framfaraflokkinn og andúð þeirra á útlendingum. Ég minnist þess ekki að hafa heyrt neitt frá Framsóknarflokkum sem bendir til þess að hann eigi samleið með nefndum flokkum í þessum málum. Lesa meira

Hvorki hægrið né vinstrið

Hvorki hægrið né vinstrið

Eyjan
09.12.2013

Eitt finnst mér vera dagljóst eftir reynslu af stjórnmálum síðustu ára: Mann langar hvorki að tilheyra íslenska hægrinu né íslenska vinstrinu. Lýður Árnason læknir skrifar ádrepu um þetta á vef DV undir yfirskriftinni Vinstrið getur sjálfu sér um kennt: „Vinstrið og Hægrið rífast sem aldrei fyrr.  Hægrið plægir nú akur fjármálanna og rótar öllu á Lesa meira

Bréfið frá Halldóri litla

Bréfið frá Halldóri litla

Eyjan
09.12.2013

Þetta litla bréf sker alveg í hjartað – eða þannig. Því hefur verið dreift víða á netinu í gær og í dag, birtist víst í Neytendablaðinu. Maður getur ekki annað en haft samúð með Halldóri litla, hann er eins og út úr jólasögu. En Gísli á Málbeininu telur að þetta sé fölsun – eða eigum Lesa meira

Einkennileg framsetning

Einkennileg framsetning

Eyjan
09.12.2013

Á forsíðu Fréttablaðsins í dag má lesa eftirfarandi fyrirsögn: Erlendir nemendur fá nám ókeypis í fjárvana háskóla Framsetningin er sérkennileg, vægast sagt – og heimóttarskapurinn ríður ekki við einteyming. Íslenskir stúdentar hafa sótt háskóla á Norðurlöndunum og í Evrópu og lítið eða ekkert þurft að borga. Þetta auðgar menntir og menningu í landinu; manni hrýs Lesa meira

Of stór skammtur af Facebook

Of stór skammtur af Facebook

Eyjan
09.12.2013

Ég var daufur í dálkinn seinni partinn í gær, átti erfitt með svefn og vaknaði með kvíðahnút í maganum. Í morgun fór ég að velta því fyrir mér hvað væri að. Komst að því að ég hefði verið of mikið á Facebook um helgina. Það var próblemið. Ég var kominn með of stórann skammt af Lesa meira

Eins og spáð var

Eins og spáð var

Eyjan
08.12.2013

Þessa færslu setti ég hér inn á vefinn 25. október. Þetta er að ganga nákvæmlega eftir: „Greinendur stjórnmála telja sig sjá ákveðið munstur í fjárlagagerðinni og því hvernig umræðan um fjárlögin er að þróast. Kenningin er svona. Áður en Alþingi samþykkir fjárlögin verða framlög til heilbrigðismála aukin talsvert – kvartanirnar af Landspítalanum eru orðnar að Lesa meira

Gleðilegur hagvöxtur

Gleðilegur hagvöxtur

Eyjan
08.12.2013

Það er stórfrétt og gleðileg að hagvöxtur á þriðja ársfjórðungi þessa árs sé 4,9 prósent – og hagvöxtur á árinu 3,1 prósent. Skýringar, maður hefur ekki heyrt mikið af þeim, en segir þó að þetta sé drifið áfram að útflutningi? Þar er náttúrlega makríllin – jú, og ferðamenn teljast líklega til útflutnings í þessu samhengi. Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af