Húsnæðisverð og hæsta verðbólga í Evrópu
EyjanÞað virðist ekki vera nokkur leið að hafa stjórn á verðbólgu á Íslandi, ekki einu sinni í lokuðu hagkerfi, innan gjaldeyrishafta. Launþegar eru varaðir við því að fara fram á kauphækkanir – þær muni undir eins brjótast fram í hækkaðri verðbólgu. Verðbólga er hæst í Evrópu hér á Íslandi. Samkvæmt nýjum tölum mælist hún 4,2 prósent. Lesa meira
Innanlandsflug frá Keflavík?
EyjanÞað er rakið að kanna hvort ekki sé grundvöllur fyrir innanlandsflug frá Keflavík, hvort sem Reykjavíkurflugvöllur verður lagður niður eða ekki. Eins og staðan er núna þurfa ferðamenn sem koma til Íslands að fara í gegnum Reykjavík – þeir geta ekki lent í Keflavík og flogið beint áfram til Akureyrar eða Egilsstaða. Og eins er Lesa meira
Land ársins – Uruguay
EyjanTímaritið The Economist velur Uruguay sem land ársins. Það nefnir ástæður sem tengjast umbótamálum, Uguguay hafi heimilað hjónabönd samkynhneigðra, framleiðsla, neysla og sala kannabis hafi verið leyfð í landinu – og með því hafi lögregla fengið svigrúm til að sinna alvarlegri afbrotum. Einnig hrósar blaðið forseta landsins. José Mujica, og segir að hann sé bæði Lesa meira
Vantar stjórnfestu
EyjanÞað sem einkennir pólitíkina þessa dagana er aðallega hringl fram og til baka. Það er svosem ekki nýtt, eða hver man ekki eftir hringlinu í kringum stjórnarskrána í tíð síðustu ríkisstjórnar. Nú er hringlið í kringum fjárlögin þar sem gengur á með vandræðalegum uppákomum og yfirlýsingum. Talsambandið innan stjórnarliðsins virðist ekki vera sérlega gott. Maður Lesa meira
Framsóknarmenn vilja svínakjöt
EyjanMér sýnist stórfrétt vera að fara framhjá okkur, nefnilega að Framsóknarmenn vilji svínakjöt á jólunum. Skoðanakönnun hefur leitt þetta í ljós. Þeir vilja semsagt ekki lambakjöt, hangikjöt eða þá hina ofurþjóðlegu rjúpu. Nei, svínakjöt. Það er fátt óþjóðlegra en svínakjöt. Það er næstum tákn um allt sem er óþjóðlegt. Kemur svosem ekki á óvart að Lesa meira
Verslunin í kröggum
EyjanVinur minn einn segir að lundinn hljóti að vera jólagjöfin í ár. Það gefur auga leið – það eru svo margar lundabúðir á Laugaveginum. Annars er kvartað undan slæmri stöðu verslunar í landinu, ég held að full ástæða sé til. Hún býr við einn hæsta virðisaukaskatt í heimi, vörugjöld og tolla, fáránlega háa vexti – Lesa meira
Íslendingar, enskan og danskan
EyjanÍslendingar færast stöðugt nær því að verða tvítyngdir. Börn alast upp við tölvuefni sem er mikið til á ensku, sjónvarpsefnið er á ensku – með tilkomu efnisveita eins og Netflix færist enskunotkunin enn í aukana, það er vandséð að hægt verði að koma þar inn íslenskum texta. Þetta er annað en var á tíma Kanasjónvarpsins, þá Lesa meira
RÚV – fréttirnar, menningin, afþreyingin
EyjanMenn setja nú fram alls konar hugmyndir um hvernig Ríkisútvarpið eigi að vera. Það er reyndar ekki víst að þurfi að skilgreina það upp á nýtt. Um þetta er fjallað nokkuð nákvæmlega í lögum um Ríkisútvarpið sem voru sett í fyrra, þar segir að RÚV eigi að sinna fréttum, fræðslu, menningu og afþreyingu. Þetta er Lesa meira
Glufu er haldið opinni
EyjanBirgir Ármannsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, áréttar það sem er reyndar vitað í viðtali við Rúv – það er ekki búið að slíta aðildarviðræðunum við Evrópusambandið. Á þeim hefur verið hlé, reyndar hefur það staðið síðan á síðasta misseri ríkisstjórnar Jóhönnu og Steingríms, og viðræðunefnd Íslands hefur verið leyst upp. Menn eru farnir að velta fyrir Lesa meira
Ofgnótt matreiðsluþátta og -bóka
EyjanÞað er gríðarlegt flóð af matreiðslubókum og -þáttum sem steypist yfir þjóðina. Þetta er mjög misjafnt að gæðum. Sumir kunna til verka, aðrir setja ost í allt, nota sósur úr krukku og skaðbrenna kjöt. Láta kunnáttuleysið ekki aftra sér frá því að gefa út bækur og gera þætti. Drottning matreiðsluþáttanna er Nigella Lawson sem hefur Lesa meira