Datt botninn úr?
EyjanHugsanlega má segja að botninn hafi dottið úr nýrri Evrópustefnu ríkisstjórnarinnar í gær, þegar uppvíst varð um makrílsamninga Norðmanna, Færeyinga og ESB. Þar staldrar maður einkum við tvö atriði: – Samstarf við Noreg og Liechtenstein á vettvangi EES-samningsins verði eflt. – Áhersla lögð á áframhaldandi öflugt norrænt og vestnorrænt samstarf til að efla enn frekar Lesa meira
Hvernig getum við verið svona grimm?
EyjanSigríður Jóhannesdóttir, kennari og fyrrverandi alþingismaður úr Keflavík, setti þessa færslu inn á Facebooksíðu sína í kvöld. Nú þekkir maður vissulega ekki málavöxtu, en þetta er sannarlega umhugsunarvert: Ég er alveg niðurbrotin út af því að rússnesk stúlka sem hafði stöðu flóttamanns hér og ég hafði svolítið vingast við var fyrirvaralaust rekin úr landi fyrr Lesa meira
Varla í Landsvirkjun – vinátta þvert á flokka
EyjanÞví er haldið fram að Davíð Oddsson verið skipaður stjórnarformaður í Landsvirkjun í næsta mánuði. Það er ekki trúlegt. En hins vegar gæti vel verið að sé mikill þrýstingur frá vinum og aðdáendum Davíðs að ríkisstjórnin veiti honum einhverja slíka vegtyllu. Enn sem komið er mun framboðið þó vera meira en eftirspurnin. Forsætisráðherrann fyrrverandi hefur Lesa meira
Mikið vill meira
EyjanÚtgerðarmenn stíga nú fram og vilja gengisfellingu – að gömlum þjóðlegum sið. Kröfugerð þeirra ætti að geta verið nokkuð sterk, útgerðin hefur flotið ofan á sem langsterkasti hagsmunahópur Íslands eftir hrun. Meðal þeirra sem tjá sig um þetta er Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstjóri HB Granda. Kannski má nota um þetta orðatiltækið „mikið vill meira“. Hér er að Lesa meira
Þegar gengisfellingar voru daglegt brauð
EyjanÍ frétt sem birtist á Bloomberg fréttaveitunni í morgun segir að íslenskir útgerðarmenn hafi áhyggjur af því að gengi krónunnar sé orðið alltof hátt. Segir að útgerðarmenn telji að stjórnvöld og Seðlabankinn haldi uppi alltof háu krónugengi sem sé skaðlegt fyrir sjávarútveginn. Við höfum reyndar líka lesið fréttir um það í morgun að íslenska krónan Lesa meira
Menningarstarfsemi á Grettisgötu, þýðingar á heimsbókmenntum, uppáhaldsbækur Sögu
EyjanÍ Kiljunni á miðvikudagskvöld fjöllum við um prentsmiðjuna Letur. Hún var lengi starfrækt á Grettisgötu, af Sigurjóni Þorbergssyni, og prentaði mikið af bókum á tíma svokallaðra fjölritunarskálda. Þetta var á árunum upp úr 1970 og fjöldi höfunda prentaði bækur sínar hjá Sigurjóni, sumir voru allsendis óþekktir og gáfu kannski bara út eina bók, aðrir voru Lesa meira
Stund sannleikans, lánaokrið og bankaokið
EyjanStundum upplifir maður það sem kallast stund sannleikans. Ég geri það eiginlega alltaf þegar ég skoða stöðuna á húsnæðisláninu. Ég skoða reyndar ekki mjög oft – það myndi alveg fara með mann. Þarna sér maður nefnilega að maður er í raun öreigi. Það sem þær geta hækkað og undið upp á sig þessar rúmu 20 Lesa meira
Misjafnlega vel heppnuð endurbygging húsa
EyjanNú virðist loks eiga að ljúka framkvæmdum við Laugaveg 4-6 eins og dæmið átti að líta út. Með tveimur gömlum endurgerðum húsum og tengibyggingu. Það verður að segjast eins og er að endurgerðin hefur virkað hálf daufleg – í öðru húsinu, því minna, er Timberland-búð en ör skipti hafa verið á rekstraraðilum á Laugavegi 4. Lesa meira
Sigmundur og Davíð að hittast?
EyjanÞað þykir væntanlega saga til næsta bæjar ef trúnaðarsamband er milli fyrrverandi forsætisráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins og núverandi forsætisráðherra og formanns Framsóknarflokksins. Ekki myndi þetta síst sæta tíðindum innan flokkanna sjálfra, en það hefur reyndar verið kunnugt um nokkurt skeið að Davíð Oddsson hefur mun meira dálæti á Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni en Bjarna Benediktssyni – Lesa meira
Hr. Þorskhaus
EyjanÞessari gömlu skopmynd skaut upp á Facebooksíðu sem nefnist Gamlar ljósmyndir. Þar er margt hnýsilegt að finna. Menn eru ekki vissir hvort þeir viti út á hvað myndin gengur, en þetta virðist vera þorskur í jakkafötum með hatt, og undir stendur. Ek em bjargvættur yðr. Jú, það má til sanns vegar færa. En er þetta Lesa meira