Ari Trausti alþingismaður Vinstri grænna: Ekki leiddist mér
EyjanEf til vill sjá nýir þingmenn óljóst hvort eða hvernig störf hafa breyst á nýloknu þingi. Hvað sem því líður tel ég þingstörfin málefnalegri og heldur lausnarmiðaðri en oftast áður. Það kemur helst til í fastanefndum, líkt og Ásmundur Friðriksson hefur minnst á í grein í Suðra. Engu að síður hnykki ég á þeirri staðreynd Lesa meira
Björn ósáttur og skammar RÚV: Dæmigerð fyrirsögn fyrir RÚV og VG
EyjanBjörn Bjarnason fyrrverandi dómsmálaráðherra gagnrýnir Ríkisútvarpið fyrir fréttaflutning af vopnaburði lögreglunnar. Í fréttum Stöðvar 2 á laugardag kom fram að Ríkislögreglustjóri hefði aukið viðbúnað sinn á fjöldasamkomum. Sú ákvörðun var tekin í kjölfar hryðjuverkaárása í Bretlandi. Aukinn viðbúnaður birtist Íslendingum meðal annars í vopnuðum lögreglumönnum á Color Run þar sem fjöldi barna var þátttakendur sem Lesa meira
Lögreglan hefur rýmt 23 tjaldbúðir Rómafólks í Kaupmannahöfn: Nokkrum vísað úr landi
EyjanLögreglan í Kaupmannahöfn hefur undanfarna daga rýmt tjaldbúðir Rómafólks í borginni en mikið hefur verið kvartað undan fólkinu. Það er sagt stunda betl víða um borg og þá hafa útigangsmenn kvartað undan ágangi Rómafólks og segja það hafa krafið þá um greiðslu, 500 danskar krónur, á nóttu fyrir að fá að sofa á ákveðnum stöðum Lesa meira
Pétur: Samfylkingin kann ekki leikinn
EyjanÞað er óhætt að segja að Pétur Georg Markan, sveitarstjóri Súðavíkurhrepps, hafi fundið sig á Vestfjörðum. Borgarbarnið úr Fossvoginum fór vestur árið 2000, nýlega búið að missa föður sinn, áttavillt en fann leiðina sína undir fjöllunum, við hafið, með fólkinu fyrir vestan. Hann lýsir flutningnum vestur, þar sem hann tókst á við átök fylgjandi því Lesa meira
Ögmundur: Vopnaburður lögreglu er ógn við öryggi okkar
EyjanÖgmundur Jónasson skrifar: Ég leyfi ég mér að fullyrða að sýning á vopnuðum lögreglumönnum við samkomur fólks hefur engan fælingarmátt gegn illvirkjum. ENGAN. Vopnuð lögregla ógnar þvert á móti eigin öryggi og öryggi borgaranna. Þetta var lengstum afstaða samtaka lögreglumanna og vísbendingar hafa komið fram um að afstaða almennings hafi til þessa verið á sama Lesa meira
,,Aðeins um 40 smábátar hafa grundvöll til að fara á makrílveiðar“
EyjanAxel Helgason var kjörinn formaður á síðasta aðalfundiLandssambands smábátaeigenda. Hann segir að aðdragandi framboðs síns hafi veriðskammur . Axel hefur gert út á grásleppu á innanverðum Breiðafirði frá árinu2004 á sínum bát, Sunnu Rós SH-123, þegar fjölskyldan keypti stóra eyju,Efri-Langey, og byggði upp aðstöðu þar til að vera í faðmi Breiðafjarðar allavertíðina. Grásleppuvertíðin var af hálfu Lesa meira
Mótmæla brottvikningu Kristjáns: „Fólki líkar auðsjáanlega ekki svona vinnubrögð“
EyjanYfir 600 manns hafa sett nafn sitt á undirskriftasöfnun þar sem brottvikningu Kristjáns Þorbjörnssonar er mótmælt. „Viðbrögðin hafa komið mér í opna skjöldu og eru varla verðskulduð en mér þykir vænt um þetta. Fólki líkar auðsjáanlega ekki svona vinnubrögð,“ segir Kristján Þorbjörnsson, yfirlögregluþjónn á Blönduósi, sem vikið var frá störfum í síðasta mánuði, inntur eftir Lesa meira