Vilhjálmur Egilsson: Kannski er þetta tímabil í sögu Bandaríkjanna bara liðið
EyjanBandaríkin, sem eftir seinna stríð tóku að sér svipað hlutverk og Aþena gerði til forna og einbeittu sér að því að byggja upp vinaþjóðir og viðskiptafélaga, virðast hafa snúið við blaðinu. Kannski er því tímabili, þegar Bandaríkin voru leiðandi ríki í alþjóðaviðskiptum, einfaldlega lokið. Tollastríðið sem Trump hóf hefur haft margvíslegar afleiðingar fyrir Bandaríkin og Lesa meira
Guðrún Karls Helgudóttir: Nú getur biskup einbeitt sér að því sem biskup á að gera
EyjanVið þær breytingar sem orðið hafa á Þjóðkirkjunni undanfarin örfá ár hefur það gerst að í stað þess að bera nú ábyrgð á rekstri Þjóðkirkjunnar getur biskup nú einbeit sér að því sem biskup á að gera, nefnilega kristninni. Samkvæmt kirkjujarðasamkomulaginu eru tekjur Þjóðkirkjunnar í föstum skorðum en ríkið heldur enn í sóknargjöldin. Guðrún Karls Lesa meira
Gylfi Magnússon: Bandaríkjamenn eru sjálfir að borga tolla Trumps
EyjanTollastefna Bandaríkjaforseta er afleit en hefur enn sem komið er haft takmörkuð áhrif og heimshagkerfið virðist hafa fundið leiðir til að lifa með þessu. Engin veruleg áhrif eru merkjanleg hér á landi og þó ber íslenskur fiskur nú tolla vestra, enda er íslenskur útflutningur til Bandaríkjanna að mestu ferðaþjónusta sem ekki ber tolla. Tollar rugla Lesa meira
Gylfi Magnússon: Áföllin í ár hversdagsleg – vel viðráðanleg fyrir hagkerfið
EyjanAukin fjölbreytni í íslensku atvinnulífi og fjölgun undirstöðuútflutningsgreina gerir það að verkum að áföll á borð við fall Play og rekstrarstöðvun Norðuráls að stórum hluta vegna bilunar eru vel viðráðanleg fyrir hagkerfið en ekki rothögg eins og varð í Hruninu og Covid. Gylfi Magnússon, hagfræðiprófessor og fyrrverandi ráðherra, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar. Lesa meira
Örn Bárður Jónsson: Sagði allt til sölu á Íslandi – Davíð fyrtist við og hjólaði í biskup
EyjanDavíð Oddsson, þá forsætisráðherra, krafði biskup Íslands skýringa á því hvort efnistök sr. Arnar Bárðar Jónssonar í smásögu, sem fjallaði um sölu Esjunnar og hvernig allt virtist til sölu hér á landi um síðustu aldamót, væru á vegum Þjóðkirkjunnar. Það er alvarlega atlaga að tjáningarfrelsinu að forystumaður framkvæmdavaldsins sé að skipta sér af tjáningu í Lesa meira
Séra Örn Bárður Jónsson: Samtímamenn Jesú skrifuðu Nýja testamentið – Kóraninn meira og minna skáldskapur
EyjanFjölmenningin er komin til að vera og við þurfum innflytjendur til að halda uppi okkar þjóðfélagi. Á meðan Nýja testamentið var skrifað að fullu nokkrum áratugum eftir dauða Jesú og sumt af samtímamönnum hans var Kóraninn skrifaður 400 til 900 árum eftir dauða Múhameðs. Engar heimildir eru um hann í arabískum textum og Mekka er Lesa meira
Séra Örn Bárður Jónsson: Ekki tilviljun að Norðurlöndin eru fremst – þjóðkirkjan er í lykilhlutverki
EyjanÞað er ekki tilviljun að Norðurlöndin eru flaggskipin í heiminum þegar kemur að mannréttindum, jafnrétti, heilbrigðisþjónustu, skólakerfi og fleiri þáttum. Þar hefur verið lútersk þjóðkirkja í 500 ár. Lúterska þjóðkirkja hefur mótað okkur og þegar á reynir stöndum við saman eins og ein fjölskylda. Dæmi um það eru gosið í Vestmannaeyjum og snjóflóð. Guðfræðin þróast Lesa meira
Séra Örn Bárður Jónsson: Var með doða í öðru heilahvelinu eftir námið
EyjanÞegar séra Örn Bárður Jónsson hóf nám í guðfræði fékk hann ekki námslán vegna þess að honum var ætlað að lifa af tekjum ársins á undan. Hann var því í einu og hálfu starfi við að kosta sig í gegnum námið en lauk samt fimm ára námi á fjórum árum. Á eftir var hann með Lesa meira
Séra Örn Bárður Jónsson: Vissi lítið um trú – fékk opinberun og venti kvæði sínu í kross
EyjanStarf prestsins er þjónustustarf og við erum öll þjónar í þessu lífi. Séra Örn Bárður Jónsson, sem lengi var sóknarprestur í Neskirkju, ætlaði upphaflega að verða endurskoðandi og hóf nám í þeirri grein. Svo varð hann fyrir trúarlegu afturhvarfi og venti kvæði sínu í kross. Hann telur að sendlastarfi í búð föður hans á Ísafirði Lesa meira
Karl Ágúst Úlfsson: Aldurinn farinn að segja til sín – eins gott að þú ert að hætta
EyjanÍ síðustu sýningunni sem Karl Ágúst Úlfsson lék af Fíflinu gerðist það í fyrsta sinn á hans ríflega 40 ára leikferli að hann gleymdi textanum á leiksviði. Hann spann sig út úr því þannig að áhorfendur urðu einskis varir og sonur hans, Eyvindur, sem lék á móti honum í sýningunni gantaðist með að nú væri Lesa meira
