Mynd

Nýnasistar láta að sér kveða á Norðurlandi

Að undanförnu hafa miðar, þar sem yfirburðum hins hvíta norræna manns er hampað, verið límdir upp á nokkrum stöðum á Norðurlandi. Á þeim er einnig tekin afstaða gegn samkynhneigðum. Á sumum miðanna er græn ör en hún er merki samnorrænnar nýnasistahreyfingar. Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag.