

Michael Carrick, bráðabirgðastjóri Manchester United, vill halda brasilíska miðjumanninum Casemiro hjá félaginu og hefur gert stjórnendum félagsins hjá INEOS það ljóst.
Samkvæmt upplýsingum frá blaðamanninum Graeme Bailey telur Carrick að reynsla Casemiro geti enn skipt miklu máli fyrir liðið, sérstaklega á miðjunni þar sem United hefur leitað að stöðugleika á tímabilinu.
Stjórnendur Manchester United eru nú sagðir tilbúnir að ræða við 34 ára gamla leikmanninn um nýjan samning. Hins vegar er talið að Casemiro þurfi að samþykkja ákveðnar fórnir til að samkomulag náist.
Helst er rætt um að hann þyrfti að lækka laun sín ef hann á að halda áfram á Old Trafford til lengri tíma. Búið er að gefa út að Casemiro fari í sumar þegar samningur hans er á enda.
Ef Carrick fær sínu framgengt gæti brasilíski miðjumaðurinn því haldið áfram í rauðu treyjunni á næstu árum.