
Arne Slot er kominn undir mikla pressu hjá Liverpool eftir slaka frammistöðu liðsins undanfarið, en félagið mun þurfa að greiða háa upphæð ef það ákveður að láta Hollendinginn fara.
Slot tók við af Jurgen Klopp fyrir síðustu leiktíð og byrjaði frábærlega og leiddi Liverpool að Englandsmeistaratitlinum. Í sumar voru gerðar miklar fjárfestingar, yfir 400 milljónir punda fóru í meðal annars Florian Wirtz, Alexander Isak og Jeremie Frimpong.
En hrun hefur orðið í frammistöðu síðustu vikur. Eftir tvo 0-3 tapleiki í röð í deildinni fékk Liverpool skell á Anfield í gær þegar PSV Eindhoven vann sannfærandi 4–1 í Meistaradeildinni.
Stuðningsmenn eru farnir að efast um Slot og krefjast sumir þeirra aðgerða áður en of seint verður. Samkvæmt enskum fjölmiðlum myndi brottrekstur hins 47 ára gamla Slot þó kosta Liverpool meira en 10 milljónir punda, þar sem hann samdi í fyrra til 2027 um 6,6 milljóna punda árslaun auk bónusa.