fbpx
Föstudagur 17.apríl 2026
Pressan

Þekktur tannlæknir skotinn til bana af lögreglu – Missti öll tök eftir skilnað

Pressan
Miðvikudaginn 4. mars 2026 19:30

Steven Lin var skotinn til bana.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan í Potts Point í Sydney í Ástralíu skaut þekktan tannlækni þar í landi til bana eftir að hann braust inn til konu og réðst á hana með fólskulegum hætti.

Konan, Chloe Paul, sem starfar sem ljósmyndari, var að vinna heima þegar maðurinn, Steven Lin, braust inn í íbúð hennar og krafðist peninga. Chloe, sem æfði box, reyndi hvað hún gat að verjast höggum Stevens og tókst henni að hringja í neyðarlínuna eftir aðstoð.

Þegar lögreglumenn komu á vettvang beittu þeir rafbyssu gegn Steven, en þegar hann gerði sig líklegan til að ráðast að þeim með hníf var hann skotinn einu sinni. Hann var úrskurðaður látinn við komuna á sjúkrahús.

Í frétt News.com.au kemur fram að lögregla telji að Steven hafi verið undir áhrifum fíkniefna þegar atvikið átti sér stað.

Áður en hann braust inn í íbúð Chloe hafði hann einnig ráðist á nágranna hennar í sameiginlegu þvottahúsi fjölbýlishússins. Chloe gekkst undir aðgerð vegna nefbrots á miðvikudag fyrr í dag.

Chloe Paul var með slæma áverka í andliti eftir árásina.

Óhætt er að segja að saga Steven Lin sé sorgarsaga, en hann var áður þekktur tannlæknir og sérfræðingur í næringarfræði tengdri tannheilsu. Hann rak um tíma tvær tannlæknastofur á Central Coast í Nýju Suður-Wales og gaf út metsölubókina The Dental Diet.

Á vefsíðu hans var hann kynntur sem talsmaður forvarna og heildrænnar nálgunar í heilsu, þar sem hann lagði áherslu á að tengsl væru milli mataræðis og tannsjúkdóma.

Á síðustu árum hafði líf hans þó farið í óefni. Samkvæmt fjölmiðlum þróaði hann með sér fíkn í metamfetamín eftir að hjónaband hans fór í vaskinn.

Nokkrum dögum áður en hann lést hafði Lin einnig komið fyrir dóm í Wollongong þar sem hann var ákærður fyrir að ráðast á vændiskonu og stela 2.000 dollurum frá henni í fyrra. Á undanförnum árum hefur hann nokkrum sinnum komist í kast við lögin, meðal annars vegna líkamsárása og brota gegn nálgunarbanni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kraftaverkabarnið handtekið nærri 40 árum síðar

Kraftaverkabarnið handtekið nærri 40 árum síðar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ísraelsmenn brjálaðir út í Spánverja

Ísraelsmenn brjálaðir út í Spánverja
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Djöfullinn er til, hann er innra með mér, og ég borðaði mömmu”

„Djöfullinn er til, hann er innra með mér, og ég borðaði mömmu”
Pressan
Fyrir 4 dögum

Björguðu 9 ára dreng sem hafði verið læstur inni í bíl í eitt og hálft ár

Björguðu 9 ára dreng sem hafði verið læstur inni í bíl í eitt og hálft ár
Pressan
Fyrir 4 dögum

Langur svefn getur leitt til þyngdartaps

Langur svefn getur leitt til þyngdartaps