
Henni var hins vegar meinaður aðgangur að sjúkrastofu Noeliu og náði því ekki að hitta vinkonu sína áður en lífslokaaðgerðin fór fram.
Fjallað var um málið í gær og vakti umfjöllunin mikla athygli.
Castillo varði stórum hluta æsku sinnar í fóstri vegna fíknar og andlegra veikinda foreldra sinna. Hún segist svo endanlega hafa fengið nóg af lífinu árið 2022 eftir að henni var nauðgað í tvígang, fyrst af fyrrverandi kærasta og síðan hópnauðgað af þremur ókunnugum karlmönnum á næturklúbbi.
Nokkrum dögum eftir síðari nauðgunina reyndi hún að svipta sig lífi með því að kasta sér fram af fimmtu hæða fjölbýlishúss. Hún hlaut mænuskaða við fallið, lamaðist fyrir neðan mitti og glímdi í kjölfarið við sársaukafulla taugaverki. Faðir hennar reyndi að koma í veg fyrir að hún fengi dánaraðstoð en laut í lægra haldi fyrir spænskum dómstólum.
Í frétt spænska miðilsins Okidario, sem New York Post vitnar til, mætti Carla Rodriguez, æskuvinkona Castillo, á sjúkrahúsið um klukkustund áður en dánaraðstoðin fór fram.
Hún segir að hún hafi fyrst frétt af ákvörðuninni í gegnum fjölmiðla og hafi þá tafarlaust farið á staðinn í von um að fá að tala við hana.
„Ég vildi reyna að fá hana til að skipta um skoðun,“ sagði Rodriguez, sem var á staðnum með sex ára dóttur sinni. Samkvæmt heimildum var henni þó synjað um aðgang að herberginu af öryggisvörðum sjúkrahússins.
Í viðtali sem birtist daginn áður en aðgerðin fór fram sagði Castillo að hún væri orðin örmagna af langvarandi sársauka og lífsgæðum sem hún taldi óviðunandi.
„Ég vil hætta að þjást,“ sagði hún og lýsti meðal annars miklum verkjum, svefnleysi og áhugaleysi á daglegu lífi. Noelia lést í Barcelona síðdegis í gær.
❌ El hospital impide a la mejor amiga de Noelia verla antes de morir: «Quería intentar que cambiara de opinión».
📹 Te informa Irene Tabera (@irenetabera).
📲 Lee la noticia aquí: https://t.co/qKvZ5BCgmU pic.twitter.com/COB8HK6PBz
— okdiario.com (@okdiario) March 26, 2026
__________
Í þessari frétt er fjallað um þunglyndi og sjálfsvíg. Ef einstaklingar glíma við sjálfsvígshugsanir er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa samband við Píeta-samtökin sem veita ókeypis ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.