fbpx
Föstudagur 27.mars 2026
Pressan

Lukashenko gaf Kim Jong Un byssu „ef óvinir láta sjá sig“

Pressan
Föstudaginn 27. mars 2026 15:30

Kim Jong Un var hæstánægður með gjöfina.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Forseti Hvíta-Rússlands, Alexander Lukashenko, og leiðtogi Norður-Kóreu, Kim Jong Un, undirrituðu á fimmtudag víðtækan vináttu- og samstarfssamning eftir fund í höfuðborg Norður-Kóreu, Pyongyang.

Lukashenko var í tveggja daga opinberri heimsókn í landinu og lýsti samningnum sem tímamótum í samskiptum ríkjanna og er hann sagður marka nýtt skeið í tvíhliða samskiptum.

Hann viðurkenndi jafnframt að samstarf ríkjanna hefði áður verið takmarkað, en sagði að það myndi nú breytast.

„Við höfum ekki haft náið samstarf hingað til, að miklu leyti vegna okkar eigin mistaka. En nú munum við sjá aukningu í samstarfi,“ er haft eftir Lukashenko.

Auk aðalsamningsins undirrituðu embættismenn ríkjanna fjölda samninga og viljayfirlýsinga um samstarf á sviðum á borð við menntun, heilbrigðisþjónustu og landbúnað. Lukashenko sagði að aukið samstarf sjálfstæðra ríkja væri mikilvægt í ljósi þess sem hann kallaði brot stórvelda á alþjóðalögum.

Kim Jong Un lýsti yfir fullum stuðningi við Hvíta-Rússland og gagnrýndi jafnframt það sem hann kallaði ólögmætan þrýsting Vesturlanda á landið, samkvæmt upplýsingum frá hvítrússneskum stjórnvöldum.

Leiðtogarnir skiptust einnig á táknrænum gjöfum. Kim færði Lukashenko sverð og stóran vasa með mynd af honum, en Lukashenko gaf Kim meðal annars árásarriffil framleiddan í Hvíta-Rússlandi. Sagði hann að gjöfin muni nýtast vel ef „óvinir skyldu láta sjá sig“.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Örvænting á Tenerife þegar ferðamenn sátu fastir: „Getur einhver hjálpað okkur?“

Örvænting á Tenerife þegar ferðamenn sátu fastir: „Getur einhver hjálpað okkur?“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Teslueigandi skælbrosandi á handtökumynd – Ók ölvuð inn í þvögu af fólki

Teslueigandi skælbrosandi á handtökumynd – Ók ölvuð inn í þvögu af fólki
Pressan
Fyrir 4 dögum

Spádómar Baba Vanga fyrir 2026 vekja óhug – Heimsstyrjöld og Pútín á útleið

Spádómar Baba Vanga fyrir 2026 vekja óhug – Heimsstyrjöld og Pútín á útleið
Pressan
Fyrir 4 dögum

Sérfræðingar eru hreinskilnir – Svona lengi eiga samfarir að vara að meðaltali

Sérfræðingar eru hreinskilnir – Svona lengi eiga samfarir að vara að meðaltali