fbpx
Miðvikudagur 25.mars 2026
Pressan

Örvænting á Tenerife þegar ferðamenn sátu fastir: „Getur einhver hjálpað okkur?“

Pressan
Miðvikudaginn 25. mars 2026 15:30

Ferðamaðurinn veifaði eftir aðstoð.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óvenjumiklar rigningar hafa verið á Tenerife síðustu daga og komust nokkrir ferðamenn í hann krappann í gærkvöldi þegar þeir sátu fastir í smárútu sem fór á bólakaf í bænum Puerto de la Cruz á norðurhluta eyjarinnar.

Veðurfræðingar höfðu varað við miklum rigningum og höfðu opinberar viðvaranir verið gefnar út.

Í frétt Canarian Weekly segir að fimm breskir ferðamenn sem sátu fastir í umræddri smárútu hafi sloppið ómeiddir.

Myndbandsupptökur frá vettvangi sýna skelfingu ferðalanganna þegar vatnið hækkaði hratt í göngum þar sem rútan hafði drepið á sér. Bresk kona sem komst fyrst út um sóllúgu smárútunnar klifraði upp á þakið og hrópaði örvæntingarfull: „Getur einhver hjálpað okkur?“ Annar Breti heyrist þá kalla til konunnar að halda kyrru fyrir og hjálp væri á leiðinni.

Ferðamennirnir, sem óttuðust um líf sitt þegar vatnið hélt áfram að hækka, yfirgáfu smárútuna einn af öðrum í gegnum sóllúguna. Þrír ferðamenn komust á þurrt að sjálfsdáðum en tvær konur þurftu að fá aðstoð frá viðbragðsaðilum á vettvangi. Talið er að ferðamennirnir hafi annað hvort nýkomnir til Tenerife eða á leið út á flugvöll.

Í frétt Canarian Weekly kemur fram að atvikið hafi átt sér stað um klukkan 21 að staðartíma, en um svipað leyti var send út viðvörun vegna yfirvofandi flóðahættu í farsíma íbúa á svæðinu.

Óveðrið sem olli flóðunum tengist storminum Therese, sem hefur haft víðtæk áhrif á Kanaríeyjum undanfarna daga.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Spádómar Baba Vanga fyrir 2026 vekja óhug – Heimsstyrjöld og Pútín á útleið

Spádómar Baba Vanga fyrir 2026 vekja óhug – Heimsstyrjöld og Pútín á útleið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sérfræðingar eru hreinskilnir – Svona lengi eiga samfarir að vara að meðaltali

Sérfræðingar eru hreinskilnir – Svona lengi eiga samfarir að vara að meðaltali
Pressan
Fyrir 3 dögum

Raunveruleikastjarna ákærður fyrir barnaníð – Viðurkenndi að hafa ekki haft góðan ásetning

Raunveruleikastjarna ákærður fyrir barnaníð – Viðurkenndi að hafa ekki haft góðan ásetning
Pressan
Fyrir 3 dögum

Færsla Trumps um andlát Muellers vekur hörð viðbrögð – „Forsetinn er smásmugulegur, sjúkur og andstyggilegur maður“

Færsla Trumps um andlát Muellers vekur hörð viðbrögð – „Forsetinn er smásmugulegur, sjúkur og andstyggilegur maður“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þess vegna áttu ekki að drekka vatn áður en þú ferð í háttinn

Þess vegna áttu ekki að drekka vatn áður en þú ferð í háttinn
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sérfræðingur segir að aðeins tvö lönd geti lifað kjarnorkustríð af

Sérfræðingur segir að aðeins tvö lönd geti lifað kjarnorkustríð af