fbpx
Þriðjudagur 24.mars 2026
Pressan

Vaknaði upp við vondan draum eftir að eltihrellirinn braust inn til að sjúga á henni tærnar

Pressan
Þriðjudaginn 24. mars 2026 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kona nokkur í Kaliforníu vaknaði við það á síðasta ári að einhver var að sjúga á henni tærnar. Að verki var hinn tæplega þrítugi Cristian Alejandro Solorio Anguiano, sem hafði fengið konuna á heilann eftir að hann rakst á hana í vinnunni.

Anguiano gat ekki hætt að hugsa um konuna. Hann hékk fyrir utan vinnu hennar í von um að hitta hana, reyndi ítrekað að bjóða henni á stefnumót og sendi henni bréf þar sem hann sagðist vilja taka hana með sér til Mexíkó, svo dæmi séu tekin. Þetta umsáturseinelti átti eftir að ágerast næstu vikur og mánuði. Anguiano fór að elta konuna heim eftir vinnu og svo svaf hann í bíl sínum fyrir utan heimilið. Í maí bar þráin Anguiano ofurliði. Hann braust inn til konunnar, læddist að rúmi hennar og stakk tánum hennar upp í sig. Að sögn konunnar lét hann sér ekki nægja að sjúga á henni tærnar heldur beit hana líka og sleikti.

Konan ákvað að reyna að halda ró sinni, enda óttaðist hún um öryggi sitt. Hún talaði rólega til Anguiano í von um að hann gerði henni ekki mein. Loks kom fjölskylda konunnar inn í herbergið og skipaði Anguiano að yfirgefa heimilið. Hann flúði og konan hringdi í neyðarlínuna.

Lögregla og dómstólar litu málið alvarlegum augum. Ljóst þykir að Anguiano hafi haft kynferðislegan hvata þegar hann lagði sér tær konunnar til munns og hefur hann því verið dæmdur fyrir kynferðisbrot.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Stephen Hawking með dökka spá áður en hann lést – Gæti orðið heimsendir

Stephen Hawking með dökka spá áður en hann lést – Gæti orðið heimsendir
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fengu allar tölur réttar í lottóinu og töldu sig hafa unnið 6,2 milljarða – Fengu ekki einn eyri

Fengu allar tölur réttar í lottóinu og töldu sig hafa unnið 6,2 milljarða – Fengu ekki einn eyri
Pressan
Fyrir 2 dögum

Byrjar þú auðveldlega að gráta? – Þetta þýðir það að sögn sálfræðings

Byrjar þú auðveldlega að gráta? – Þetta þýðir það að sögn sálfræðings
Pressan
Fyrir 2 dögum

Evrópa er nú stærsti vopnainnflytjandi heims

Evrópa er nú stærsti vopnainnflytjandi heims
Pressan
Fyrir 2 dögum

Norður-Kóreu maraþoninu aflýst af dularfullum ástæðum – „Fáum líklega aldrei að vita ástæðuna“

Norður-Kóreu maraþoninu aflýst af dularfullum ástæðum – „Fáum líklega aldrei að vita ástæðuna“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þetta er besti tími dagsins, miðað við aldur, fyrir kynlíf

Þetta er besti tími dagsins, miðað við aldur, fyrir kynlíf
Pressan
Fyrir 3 dögum

Spaugileg mistök hjá verslun einni – Settu „hurðarhandföng“ í sýningargluggann

Spaugileg mistök hjá verslun einni – Settu „hurðarhandföng“ í sýningargluggann
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ekki henda bananahýðinu – Settu það í vatnsglas

Ekki henda bananahýðinu – Settu það í vatnsglas