fbpx
Sunnudagur 22.mars 2026
Pressan

Stephen Hawking með dökka spá áður en hann lést – Gæti orðið heimsendir

Pressan
Sunnudaginn 22. mars 2026 20:30

Stephen Hawking. Mynd/NASA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hinn heimsþekkti eðlisfræðingur Stephen Hawking setti fram dökka spá um framtíð jarðarinnar áður en hann lést 2018. Hann taldi að þróunin hér á jörðinni gæti haft dramatískar afleiðingar ef þær halda áfram á óbreyttum hraða.

Hawking var heimsþekktur fyrir vinnu sína við að leysa ráðgátur alheimsins, meðal annars um svarthol og heimsfræði.

Eftir því sem árin liðu ræddi hann meira og meira um það sem hann taldi ógna framtíð mannkynsins. Að hans sögn er það ekki eitthvað sem er í fjarlægri framtíð, heldur eitthvað sem þarf að taka mjög alvarlega. Newsner skýrir frá þessu.

Ein athyglisverðasta aðvörun hans snýst um mikla fólksfjölgun og orkunotkun. Ef þessi þróun heldur áfram óbreytt, taldi hann að álagið á jörðina verði svo mikið að það muni að lokum hafa hörmulegar afleiðingar.

Á tækniráðstefnu í Kína 2017 ræddi Hawking um sviðsmynd sem fékk marga til að opna augun. „Þessi mikla fólksfjölgun getur ekki haldið svona áfram inn í næsta árþúsund. Árið 2600 mun fólk standa öxl við öxl og orkunotkunin mun láta jörðina vera rauðglóandi. Þetta er ekki sjálfbært,“ sagði hann.

Með þessu var hann að benda á að ef mannkynið breytir ekki um stefnu, geti jörðin, þegar horft er langt fram í tímann, orðið óbyggileg.

Í allra svörtustu spá sinni sá hann fyrir sér að jörðin gæti endað sem „risastór logandi hnöttur“.

Hann benti einnig á aðrar hættur en loftslagsmálin og auðlindanotkun. Hann varaði við hættunni á kjarnorkustríði, heimsfaröldrum og hraðri þróun gervigreindar. Hann sagði þetta vera þætti sem gætu í versta falli valdið mikilli eyðileggingu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 12 klukkutímum

Færsla Trumps um andlát Muellers vekur hörð viðbrögð – „Forsetinn er smásmugulegur, sjúkur og andstyggilegur maður“

Færsla Trumps um andlát Muellers vekur hörð viðbrögð – „Forsetinn er smásmugulegur, sjúkur og andstyggilegur maður“
Pressan
Fyrir 12 klukkutímum

Bjóða ökumönnum 25.000 evrur fyrir að leggja ökuskírteini sitt inn í 5 ár

Bjóða ökumönnum 25.000 evrur fyrir að leggja ökuskírteini sitt inn í 5 ár
Pressan
Í gær

Þetta eru áhrifin af að borða gríska jógúrt daglega

Þetta eru áhrifin af að borða gríska jógúrt daglega
Pressan
Í gær

Orðrómarnir færast í aukana – Ætla Rússar að láta til skara skríða í Eistlandi?

Orðrómarnir færast í aukana – Ætla Rússar að láta til skara skríða í Eistlandi?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Forstjóri Netflix sagðist neita símtölum við Markle nema lögmaður sé viðstaddur

Forstjóri Netflix sagðist neita símtölum við Markle nema lögmaður sé viðstaddur
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ungi maðurinn sem hvarf í Barcelona fannst látinn

Ungi maðurinn sem hvarf í Barcelona fannst látinn