
Átakanlegar myndir frá dýraverndunarsamtökum hafa vakið töluverða athygli undanfarnar vikur. Tilkynnt var árið 2023 að Marokkó yrði einn af gestgjöfum mótsins ásamt Spáni og Portúgal.
Samtök sem berjast fyrir réttindum dýra segja að frá þeim tíma hafi umfangsmiklar aðgerðir gegn flækingshundum færst í aukana í borgum landsins. Markmiðið sé að gera ferðamannastaði og miðborgir „hreinni og öruggari“ í augum erlendra gesta, fjölmiðla og stuðningsmanna.
Í umfjöllun Daily Mail kemur fram að allt að þrjár milljónir flækingshunda lifi á götum Marokkó. Samkvæmt gögnum sem dýraverndunarsamtök hafa birt eru yfirvöld sögð beita harkalegum aðferðum, þar á meðal eitrunum og skotvopnum áður en dýrin eru grafin í fjöldagrafreitum.
Í nýlegri skýrslu var borginni Marrakech, sem á að hýsa leiki á mótinu, lýst sem eins konar „drápsmiðstöð“ þar sem hundar væru fluttir í sendibílum og aflífaðir í iðnaðarhúsnæði. Þá kemur fram í skýrslunni að í öðrum borgum hafi hundar verið sveltir og svo aflífaðir.
Alþjóðlegt bandalag dýraverndunarsamtaka (IAWPC) segir Marokkó hafa áður gripið til svipaðra aðgerða í aðdraganda stórra alþjóðlegra viðburða. Samtökin hafa lagt fram gögn til Alþjóða knattspyrnusambandsins, FIFA, þar sem finna má ljósmyndir og skjöl sem eiga að styðja ásakanirnar.
FIFA hefur í yfirlýsingum vísað til þess að marokkósk stjórnvöld hafi í umsóknarferlinu lagt áherslu á skuldbindingu sína gagnvart dýravelferð, meðal annars með uppbyggingu dýralæknastöðva og úrræðum fyrir flækingsdýr. Sambandið segist nú vinna með marokkóskum yfirvöldum og alþjóðlegum sérfræðingum til að tryggja að slíkar skuldbindingar verði virtar.