fbpx
Föstudagur 06.mars 2026
Pressan

Harmleikur þegar þrír ungir bræður drukknuðu – „Ég gat ekki bjargað þeim“

Pressan
Miðvikudaginn 28. janúar 2026 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þrír ungir bræður létust á mánudag eftir að þeir féllu ofan í ísilagða tjörn skammt frá heimili sínu í Norður-Texas í Bandaríkjunum. Atvikið átti sér stað skammt frá bænum Bonham sem er skammt norðaustur af Dallas.

Bræðurnir, sem voru 6, 8 og 9 ára gamlir, voru að leika sér utandyra nærri heimili þar sem fjölskylda þeirra hafði dvalið.

Móðir þeirra, Cheyenne Hangaman, segir í viðtali við CBS News að yngsti sonur hennar hafi verið að skauta á tjörninni þegar hann féll í gegnum ísinn. Tveir eldri bræður hans stukku þá út í vatnið til að reyna að bjarga honum.

Hangaman sagði að allt hafi gerst á örskotsstundu og hún hafi varað syni sína við því að fara nálægt vatninu. Hún reyndi sjálf að bjarga þeim en ísinn gaf sig ítrekað undan þunganum.

„Þeir voru þrír og ég ein, ég gat ekki bjargað þeim,“ sagði hún en vatnið var ískalt og voru drengirnir fljótir að missa mátt.

Nágrannar sem heyrðu hjálparköll komu fljótt á staðinn og tókst þeim að draga tvo eldri drengina upp úr vatninu. Þeir voru fluttir á sjúkrahús en endurlífgunartilraunir báru ekki árangur. Yngsti drengurinn fannst ekki strax og var dreginn upp úr tjörninni eftir umfangsmikla leit.

Drengirnir hétu Howard Doss, 6 ára, Kaleb Doss, 8 ára, og EJ Doss, 9 ára. Allir voru þeir nemendur í sama skólanum Bonham-hverfinu. Einn þeirra nágranna sem kom á svæðinn var John Ramsey, aðalþjálfari fótboltaliðs skólans.

Í viðtali við CBS News segir Hangaman að þessi ólýsanlegri harmleikur verði vonandi til að vekja foreldra til umhugsunar um að hætturnar leynast víða. „Þetta getur komið fyrir þig. Passaðu þig á að halda fast í börnin þín og segja þeim reglulega að þú elskir þau.”

Rannsókn á málinu stendur yfir.

Tjörnin sem um ræðir. Mynd/Skjáskot CBS News.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Sjónvarpsmamman glímir við dularfullan sjúkdóm sem gæti skert hreyfigetu hennar

Sjónvarpsmamman glímir við dularfullan sjúkdóm sem gæti skert hreyfigetu hennar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Skammaði barn í miðju flugi: „Þoli ekki þegar fólk getur ekki alið upp börnin sín“

Skammaði barn í miðju flugi: „Þoli ekki þegar fólk getur ekki alið upp börnin sín“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sauð upp úr þegar viðskiptavinur mætti í Trump-peysu – Sjáðu myndbandið

Sauð upp úr þegar viðskiptavinur mætti í Trump-peysu – Sjáðu myndbandið
Pressan
Fyrir 3 dögum

Útbrot á hálsi forsetans vekur áhyggjur – Læknir Trumps tjáir sig um málið

Útbrot á hálsi forsetans vekur áhyggjur – Læknir Trumps tjáir sig um málið
Pressan
Fyrir 4 dögum

Fékk áfall þegar hann sá hvað leyndist ofan í ruslatunnunni – Sjáðu myndbandið

Fékk áfall þegar hann sá hvað leyndist ofan í ruslatunnunni – Sjáðu myndbandið
Pressan
Fyrir 4 dögum

Háskólanemi datt fram úr rúminu og endaði þannig milljónum ríkari – „Þetta var Guð, ekkert annað útskýrir þetta“

Háskólanemi datt fram úr rúminu og endaði þannig milljónum ríkari – „Þetta var Guð, ekkert annað útskýrir þetta“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þriggja ára stúlka vakti óhug hjá móður sinni – Sagðist muna fyrra líf sitt og nefndi hrollvekjandi dæmi

Þriggja ára stúlka vakti óhug hjá móður sinni – Sagðist muna fyrra líf sitt og nefndi hrollvekjandi dæmi
Pressan
Fyrir 5 dögum

Hvíti dauðinn – Þögli Finninn sem Rússar gleyma ekki

Hvíti dauðinn – Þögli Finninn sem Rússar gleyma ekki