fbpx
Laugardagur 14.febrúar 2026
Pressan

Myndband sýnir skriðufallið á Nýja-Sjálandi – Margra saknað

Pressan
Fimmtudaginn 22. janúar 2026 08:23

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Börn eru á meðal þeirra sem saknað er eftir að stór skrið féll yfir vinsælt tjaldsvæði á Norðureyju Nýja-Sjálands í morgun að staðartíma.

Erlendir ferðamenn, þar á meðal Ástralar, voru á svæðinu og lentu meðal annars hjólhýsi, tjöld, ökutæki og salernisaðstaða á svæðinu undir skriðunni.

Í umfjöllun Mail Online kemur fram að kona, sem varaði aðra við yfirvofandi skriðufalli nokkru áður en hún féll, hafi sjálf grafist undir rústunum. Konan er nú hyllt sem hetja en örvæntingarfullar leitaraðgerðir hafa staðið yfir síðustu klukkustundirnar.

Konan er sögð hafa hlaupið í ofboði um svæðið klukkan 5 í morgun að staðartíma og varað fólk við yfirvofandi hættu. Skriðan féll um klukkan 09:30 að staðartíma þegar konan var inni á salernisaðstöðu tjaldsvæðisins og grófst hún undir. Mikil úrkoma hefur verið á svæðinu síðustu daga.

Í fréttum nýsjálenskra fjölmiðla kemur fram að neyðaróp hafi heyrst úr aðstöðubyggingunni en þau þagnað um fimmtán mínútum eftir að skriðan féll. Viðbragðsaðilar sem mættu á vettvang þurftu frá að hverfa um tíma af ótta við að önnur skriða myndi falla.

Tim Anderson, yfirmaður lögreglu á svæðinu, segir óvíst hversu margir grófust undir en óttast er að þeir séu allt að tíu talsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Samverkakona Epsteins segir að 25 karlmenn hafi gert þöggunarsamninga við þolendur

Samverkakona Epsteins segir að 25 karlmenn hafi gert þöggunarsamninga við þolendur
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Kanadíski Epstein“ afplánar 11 ára dóm – Bauð Andrew í heimsókn á karabíska lúxusgrenið sitt þar sem mansal og myrkraverk tíðkuðust

„Kanadíski Epstein“ afplánar 11 ára dóm – Bauð Andrew í heimsókn á karabíska lúxusgrenið sitt þar sem mansal og myrkraverk tíðkuðust
Pressan
Fyrir 3 dögum

Símtal Trump við lögreglu árið 2006 afhjúpað í Epstein-skjölunum – „Guði sé lof að þið ætlið að stoppa hann“

Símtal Trump við lögreglu árið 2006 afhjúpað í Epstein-skjölunum – „Guði sé lof að þið ætlið að stoppa hann“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ákærður fyrir að geyma dauða hvolpa og unga konu í flutningabíl

Ákærður fyrir að geyma dauða hvolpa og unga konu í flutningabíl
Pressan
Fyrir 4 dögum

Rússar með mann í haldi sem er grunaður um skotárásina

Rússar með mann í haldi sem er grunaður um skotárásina
Pressan
Fyrir 4 dögum

Á að leyfa köttum og hundum að sofa upp í? – Þetta segir dýralæknir

Á að leyfa köttum og hundum að sofa upp í? – Þetta segir dýralæknir