fbpx
Laugardagur 14.febrúar 2026
Pressan

Kaup á farsíma eftir auglýsingu á Facebook enduðu með morði

Pressan
Fimmtudaginn 22. janúar 2026 21:30

Kobe D. Aust, Alexis Baumann og Joseph G. Crane. Lögreglumynd.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjórir unglingar eru nú í haldi lögreglu í bænum Columbia í Missouri-ríki í Bandaríkjunum, grunaðir um morð. Þrjú af hinum grunuðu eru 18 ára gömul og hefur lögregla birt nöfn þeirra og myndir af þeim. Er um að ræða tvo pilta og eina stúlku. Fjórði sakborningurinn hefur ekki verið nafngreindur en þar er um að ræða dreng undir 18 ára aldri.

Ungmenninn þrjú heita Kobe D. Aust, Alexis Baumann og Joseph G. Crane.

Morðið tengist sölu á snjallsímum sem hafa verið auglýstir á Facebook Marketplace. Þann 16. janúar tilkynnti kona um þjófnað á síma sínum eftir að hún hafði mælt sér mót til að selja hann. Síminn var hrifsaður úr höndum hennar og aðilinn hljóp í burtu.

Þann 17. janúar greindi maður frá því að síma, sem hann ætlaði að selja, hefði verið rænt og auk þess miðaði manneskja á hann byssu og hótaði að skjóta ef hann hefði sig ekki hægan.

Þann 18. janúar hringdi síðan hinn 42 ára gamli Ryan Burke í lögreglu og greindi frá því að hann hefði verið skotinn er hann ætlaði að selja símann sinn. Burke lést síðan af sárum sínum á spítala.

Ungmennin fjögur eru í haldi lögreglu en ekki liggur fyrir hver var hlutur hvers þeirra í morðinu á Burke. Rannsókn heldur áfram.

Sjá nánar hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Samverkakona Epsteins segir að 25 karlmenn hafi gert þöggunarsamninga við þolendur

Samverkakona Epsteins segir að 25 karlmenn hafi gert þöggunarsamninga við þolendur
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Kanadíski Epstein“ afplánar 11 ára dóm – Bauð Andrew í heimsókn á karabíska lúxusgrenið sitt þar sem mansal og myrkraverk tíðkuðust

„Kanadíski Epstein“ afplánar 11 ára dóm – Bauð Andrew í heimsókn á karabíska lúxusgrenið sitt þar sem mansal og myrkraverk tíðkuðust
Pressan
Fyrir 3 dögum

Símtal Trump við lögreglu árið 2006 afhjúpað í Epstein-skjölunum – „Guði sé lof að þið ætlið að stoppa hann“

Símtal Trump við lögreglu árið 2006 afhjúpað í Epstein-skjölunum – „Guði sé lof að þið ætlið að stoppa hann“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ákærður fyrir að geyma dauða hvolpa og unga konu í flutningabíl

Ákærður fyrir að geyma dauða hvolpa og unga konu í flutningabíl
Pressan
Fyrir 4 dögum

Rússar með mann í haldi sem er grunaður um skotárásina

Rússar með mann í haldi sem er grunaður um skotárásina
Pressan
Fyrir 4 dögum

Á að leyfa köttum og hundum að sofa upp í? – Þetta segir dýralæknir

Á að leyfa köttum og hundum að sofa upp í? – Þetta segir dýralæknir