fbpx
Laugardagur 14.febrúar 2026
Pressan

Hugmyndafræðingur Pútíns vill að hann ráðist inn í þessi sjö ríki

Pressan
Mánudaginn 19. janúar 2026 21:30

Alexander Dugin hefur verið nefndur „Heili Pútíns“. Mynd:EPA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Alexander Dugin, umdeildur rússneskur áhrifamaður sem oft er kallaður hugmyndafræðingur Pútíns, segir að Rússar verði að grípa til róttækra ráðstafana til að endurheimta trúverðugleika sinn.

Dugin, sem er þekktur fyrir öfgafullar og fasískar skoðanir sínar, hefur lengi verið sagður einn þeirra rússnesku menntamanna sem Vladimír Pútín Rússlandsforseti sætir hugmyndir og innblástur til.

Dugin vill að Rússland endurreisi Sovétríkin og á samfélagsmiðlinum X hvatti hann rússneska herinn til að ráðast inn í Armeníu, Georgíu, Aserbaídsjan, Kasakstan, Úsbekistan, Tadsjikistan og Kirgistan.

„Rússland er skuldbundið til að gera eitthvað hræðilegt til að endurheimta trúverðugleika sinn,“ sagði Dugin á X. Með þessu gæti Pútín þannig notað tilraunir Donalds Trumps Bandaríkjaforseta til að ná yfirráðum yfir Grænlandi til að hefja innrásir í önnur lönd.

„Það er dapurlegt að þurfa að grípa til slíkra raka. En við eigum ekkert val. Í heimi mótuðum af Trump skipta aðeins grimmd, valdbeiting, fjöldaeyðing og miskunnarleysi máli.“

Rússland hefur veruleg pólitísk, efnahagsleg og hernaðarleg áhrif í Mið-Asíu og Kákasus. Kasakstan, Kirgistan og Armenía eru einnig aðilar að sameiginlegu tollabandalagi undir forystu Rússlands. En sum ríki hafa smám saman verið að endurmeta tengsl sín við Rússland vegna innrásarinnar í Úkraínu.

Í viðleitni sinni til að verjast hugsanlegri innrás Rússa hafa þau verið að efla tengsl við til dæmis Kína, Evrópusambandið, Tyrkland eða Persaflóaríkin. Telur Dugin að Rússar þurfi að bregðast við þessu.

„Í þessum aðstæðum höfum við ekkert val nema að lýsa Rússland heimsveldi [og] henda alþjóðalögum fyrir róða,“ bætti hann við.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Samverkakona Epsteins segir að 25 karlmenn hafi gert þöggunarsamninga við þolendur

Samverkakona Epsteins segir að 25 karlmenn hafi gert þöggunarsamninga við þolendur
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Kanadíski Epstein“ afplánar 11 ára dóm – Bauð Andrew í heimsókn á karabíska lúxusgrenið sitt þar sem mansal og myrkraverk tíðkuðust

„Kanadíski Epstein“ afplánar 11 ára dóm – Bauð Andrew í heimsókn á karabíska lúxusgrenið sitt þar sem mansal og myrkraverk tíðkuðust
Pressan
Fyrir 3 dögum

Símtal Trump við lögreglu árið 2006 afhjúpað í Epstein-skjölunum – „Guði sé lof að þið ætlið að stoppa hann“

Símtal Trump við lögreglu árið 2006 afhjúpað í Epstein-skjölunum – „Guði sé lof að þið ætlið að stoppa hann“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ákærður fyrir að geyma dauða hvolpa og unga konu í flutningabíl

Ákærður fyrir að geyma dauða hvolpa og unga konu í flutningabíl
Pressan
Fyrir 4 dögum

Rússar með mann í haldi sem er grunaður um skotárásina

Rússar með mann í haldi sem er grunaður um skotárásina
Pressan
Fyrir 4 dögum

Á að leyfa köttum og hundum að sofa upp í? – Þetta segir dýralæknir

Á að leyfa köttum og hundum að sofa upp í? – Þetta segir dýralæknir