fbpx
Laugardagur 28.mars 2026
Pressan

Æðaskurðlæknir grunaður um morð á fyrrverandi eiginkonu sinni og manni hennar

Pressan
Laugardaginn 17. janúar 2026 21:30

Hinn grunaði, Michael David McKee. Lögreglumynd.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður að nafni Michael David Mckee, 39 ára gamall æðaskurðlæknir, var handtekinn Illinois þann 10. janúar og ákærður fyrir tvöfalt morð.

Er Mckee grunaður um að hafa skotið til bana fyrrverandi eiginkonu sína, Monique Tepe, og eiginmann hennar, Spencer Tepe. Þau voru skotin til bana á heimili sínu í Columbus í Ohio, þann 30. desember.

Mckee og Monique Tepe voru gift í tvö ár en skildu árið 2017. Þau eiga ekki börn saman.

Vinnufélagar Spencer Tepe fóru að óttast um hann er hann mætti ekki til vinnu og báðu lögreglu um að huga að heimilinu. Hjónin fundust þá látin inni í húsinu og börn þeirra, 1 og 4 ára, voru grátandi. Börnin sakaði ekki og ekki heldur heimilishundinn.

Myndband úr eftirlitsmyndavél sýnir mann ganga frá heimilinu og sá maður líkist mjög Mckee. Á þeim grundvelli er hann ákærður fyrir glæpinn. Ekki er vitað um morðástæðu en Mckee situr í gæsluvarðhaldi í Winnibago í Illinois.

Sjá nánar um málið hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Varpar sprengju sem gæti sett málið gegn meintum banamanni Charlie Kirk í uppnám – „Sögðu að við ættum ekki að rannsaka þetta nánar“

Varpar sprengju sem gæti sett málið gegn meintum banamanni Charlie Kirk í uppnám – „Sögðu að við ættum ekki að rannsaka þetta nánar“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kartafla vakti mikinn óhug – „Brenndu þetta til dauða“

Kartafla vakti mikinn óhug – „Brenndu þetta til dauða“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Enn þreytt eftir fullan nætursvefn? – Sérfræðingur segir þetta ástæðuna

Enn þreytt eftir fullan nætursvefn? – Sérfræðingur segir þetta ástæðuna
Pressan
Fyrir 3 dögum

Vaknaði upp við vondan draum eftir að eltihrellirinn braust inn til að sjúga á henni tærnar

Vaknaði upp við vondan draum eftir að eltihrellirinn braust inn til að sjúga á henni tærnar
Pressan
Fyrir 4 dögum

„Ég klúðraði þessu“ – Hljóðupptaka varpar ljósi á hið hörmulega slys

„Ég klúðraði þessu“ – Hljóðupptaka varpar ljósi á hið hörmulega slys
Pressan
Fyrir 5 dögum

Danskar konur gagnrýna að Svíar hafi fylgt fordæmi Dana

Danskar konur gagnrýna að Svíar hafi fylgt fordæmi Dana