fbpx
Laugardagur 14.febrúar 2026
Pressan

Tyrknesk kona segist líffræðileg dóttir Trump – Höfðar mál og krefst DNA-faðernisviðurkenningar

Pressan
Mánudaginn 12. janúar 2026 07:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tyrknesk kona telur sig líkjast mjög Donald Trump Bandaríkjaforseta og hefur höfðað mál þar sem hún segir Trump líffræðilegan föður sinn og krefst hún DNA-faðernisviðurkenningar til að sanna kröfu sína.

Konan, Necla Ozmen, 55 ára, er búsett í Ankara höfuðborg Tyrklands. Hún lagði kröfuna fram í fjölskyldudómi þar í borg í september síðastliðnum, kröfu hennar var hafnað, en Ozmen hefur áfrýjað.

Hún segist fædd árið 1970 og er skráð í opinberum gögnum sem dóttir hjónana Sati og Dursun Ozmen, sem ólu hana upp. Ozmen segist síðar hafa komist að því að hún væri ættleidd og ættleidd móðir hennar, Sati, sagt henni sannleikann árið 2017. Segir Ozmen að skipt hafi verið á börnum á spítala í Tyrklandi í kringum 1970, líklega í Ankara.

Hún segir Sati hafa fætt andvana barn á spítalanum og önnur móðir, sem fæddi barn þar á sama tíma, bandarískur ríkisborgari sem Ozmen kallar Sophia, hafi afhent Sati sitt barn til að vera alið upp og skráð sem barn Ozmen hjónanna.

Sati

Ozmen heldur því fram að Sophia hafi sagt ástæðuna fyrir að hún vildi gefa barn sitt frá sér vera að barnið væri ávöxtur forboðins sambands við Trump. Í viðtali við tyrkneska fjölmiðla segist Ozmen aðeins geta giskað á hvernig Trump og Sophia hafi kynnst. Hún segir Sophiu hafa sýnt Sati mynd af Trump þegar barnaskiptin fóru fram og gefið upplýsingar um föðurinn.

Ozmen segist vilja ræða málið við Trump. Ég vil ekkert koma honum í vandræði. Ég vil bara vita sannleikann. „Ég vil bara vita hvort hann er faðir minn. Ég myndi vilja tala við hann. Ég get sannað að hann er faðir minn með DNA-faðernisprófi, ef hann samþykkir það. Ég held að hann sé góður faðir. Ég held líka að hann myndi ekki snúa baki við mér.“

Dómstóllinn vísaði kröfu Ozmen frá vegna skorts á sönnunargögnum. Hún er þó hvergi bangin og hefur áfrýjað og hefur einnig sent kröfu sína til bandaríska sendiráðsins í Tyrklandi og til dómstóls í Bandaríkjunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Samverkakona Epsteins segir að 25 karlmenn hafi gert þöggunarsamninga við þolendur

Samverkakona Epsteins segir að 25 karlmenn hafi gert þöggunarsamninga við þolendur
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Kanadíski Epstein“ afplánar 11 ára dóm – Bauð Andrew í heimsókn á karabíska lúxusgrenið sitt þar sem mansal og myrkraverk tíðkuðust

„Kanadíski Epstein“ afplánar 11 ára dóm – Bauð Andrew í heimsókn á karabíska lúxusgrenið sitt þar sem mansal og myrkraverk tíðkuðust
Pressan
Fyrir 3 dögum

Símtal Trump við lögreglu árið 2006 afhjúpað í Epstein-skjölunum – „Guði sé lof að þið ætlið að stoppa hann“

Símtal Trump við lögreglu árið 2006 afhjúpað í Epstein-skjölunum – „Guði sé lof að þið ætlið að stoppa hann“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ákærður fyrir að geyma dauða hvolpa og unga konu í flutningabíl

Ákærður fyrir að geyma dauða hvolpa og unga konu í flutningabíl
Pressan
Fyrir 4 dögum

Rússar með mann í haldi sem er grunaður um skotárásina

Rússar með mann í haldi sem er grunaður um skotárásina
Pressan
Fyrir 4 dögum

Á að leyfa köttum og hundum að sofa upp í? – Þetta segir dýralæknir

Á að leyfa köttum og hundum að sofa upp í? – Þetta segir dýralæknir