fbpx
Fimmtudagur 12.febrúar 2026
Pressan

Afbrýðisamur eiginmaður myrti kirkjurækna eiginkonu sína á meðan dætur þeirra sváfu

Pressan
Sunnudaginn 11. janúar 2026 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sölustjórinn Paul Knight, 36 ára, játaði fyrir dómi að hafa myrt eiginkonu sína, Isobellu Knight, á heimili hjónanna í Northamptonskíri á Englandi. Paul kyrkti Isobellu með berum höndum á meðan tvær dætur hjónanna sváfu í rúmum sínum.

Morguninn eftir bað hann móður sína um að hafa dæturnar hjá sér þar sem hann og Isobela væru veik. Eftir að móðir hans hafði sótt dæturnar gerði hann nokkrar misheppnaðar tilraunir til að svipta sig lífi.

Hann lenti skömmu síðar í umferðaróhappi og þar þótti lögreglumönnum framkoma hans svo sérkennileg að þeir ákváðu að rannsaka heimili hans. Við þá leit fannst líkið af Isobellu og Paul var handtekinn og ákærður fyrir morð.

Krufning leiddi í ljós að dánaorsök Isobellu hafði verið þrýstingur á háls hennar.

Isobella Knight þótti vera ákaflega blíðlynd og elskuleg kona. Hún var virk í kirkjustarfi og var mjög vinsæl í söfnuðinum. Hún þótti líka vera frábær mamma.

Nágrannar vitna um að hjónin hafi oft rifist á kvöldin og helsta orsök ágreinings þeirra virtist vera afbrýðisemi Pauls.

Paul Knight hefur verið sakfelldur fyrir morðið á eiginkonu sinni en refsing yfir honum verður ákveðin í lok mánaðarins.

Sjá nánar á Daily Mail.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Rússar með mann í haldi sem er grunaður um skotárásina

Rússar með mann í haldi sem er grunaður um skotárásina
Pressan
Fyrir 2 dögum

Á að leyfa köttum og hundum að sofa upp í? – Þetta segir dýralæknir

Á að leyfa köttum og hundum að sofa upp í? – Þetta segir dýralæknir
Pressan
Fyrir 3 dögum

Móðurinni rann kalt vatn á milli skinns og hörunds við það sem stúlkan sagði

Móðurinni rann kalt vatn á milli skinns og hörunds við það sem stúlkan sagði
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hversu oft er eðlilegt að pissa daglega? – Svarið kemur mörgum á óvart

Hversu oft er eðlilegt að pissa daglega? – Svarið kemur mörgum á óvart
Pressan
Fyrir 4 dögum

Flugfreyja varar við algengri og sóðalegri hegðun farþega

Flugfreyja varar við algengri og sóðalegri hegðun farþega
Pressan
Fyrir 4 dögum

Slátrari myrti unnustu sína með hestastyttu og skar líkið síðan í tvennt

Slátrari myrti unnustu sína með hestastyttu og skar líkið síðan í tvennt