
Lukashenko var í tveggja daga opinberri heimsókn í landinu og lýsti samningnum sem tímamótum í samskiptum ríkjanna og er hann sagður marka nýtt skeið í tvíhliða samskiptum.
Hann viðurkenndi jafnframt að samstarf ríkjanna hefði áður verið takmarkað, en sagði að það myndi nú breytast.
„Við höfum ekki haft náið samstarf hingað til, að miklu leyti vegna okkar eigin mistaka. En nú munum við sjá aukningu í samstarfi,“ er haft eftir Lukashenko.
Auk aðalsamningsins undirrituðu embættismenn ríkjanna fjölda samninga og viljayfirlýsinga um samstarf á sviðum á borð við menntun, heilbrigðisþjónustu og landbúnað. Lukashenko sagði að aukið samstarf sjálfstæðra ríkja væri mikilvægt í ljósi þess sem hann kallaði brot stórvelda á alþjóðalögum.
Kim Jong Un lýsti yfir fullum stuðningi við Hvíta-Rússland og gagnrýndi jafnframt það sem hann kallaði ólögmætan þrýsting Vesturlanda á landið, samkvæmt upplýsingum frá hvítrússneskum stjórnvöldum.
Leiðtogarnir skiptust einnig á táknrænum gjöfum. Kim færði Lukashenko sverð og stóran vasa með mynd af honum, en Lukashenko gaf Kim meðal annars árásarriffil framleiddan í Hvíta-Rússlandi. Sagði hann að gjöfin muni nýtast vel ef „óvinir skyldu láta sjá sig“.