fbpx
Miðvikudagur 25.mars 2026
Pressan

Teslueigandi skælbrosandi á handtökumynd – Ók ölvuð inn í þvögu af fólki

Pressan
Miðvikudaginn 25. mars 2026 07:30

Kaydence Carpenter

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tvítug kona frá Kentucky í Bandaríkjunum var skælbrosandi á handtökumynd. Lögregla segir hana hafa ekið Teslu-bifreið sinni undir áhrifum í gegnum hóp gangandi vegfarenda og sært að minnsta kosti fjóra.

Kaydence Carpenter, tvítug, var handtekin á sunnudag eftir að hafa ekið bílnum yfir gangstétt og inn í hóp fólks á bílastæði í miðbæ Lexington um klukkan 2:15 að nóttu.

Myndbandsupptaka sem birt var á X sýnir Carpenter, sem lyktaði af áfengi og féll síðar í edrúmennskuprófi að sögn lögreglu, rífast við fjóra einstaklinga á gangstéttinni, áður en hún sest inn í svarta Tesla Model 3 og setti bílinn í bakkgír.

Myndbandið sýnir Carpenter skyndilega keyra áfram, á meðan um tylft óttasleginna vegfarenda reyna örvæntingarfullt að komast úr vegi hans. Teslan sést keyra á að minnsta kosti þrjá einstaklinga á leiðinni út af bílastæðinu og halda síðan áfram að aka í ranga átt niður einstefnugötu á meðan vegfarendur elta bílinn.


Samkvæmt lögreglu er búist við að fórnarlömbin fjögur myndu ná sér að fullu, en lögreglan gaf ekki nánari upplýsingar um meiðsli þeirra.

Myndbandsupptaka sýnir síðar Carpenter, skólausa, klædda í svartar stuttbuxur og ljósbrúnan topp, vera rifin úr bílstjórasætinu af þremur lögreglumönnum sem handjárnuðu hana.

Samkvæmt handtökuskjali var Carpenter með blóðhlaupin og tárvot augu, talaði óskýrt og lyktaði af áfengi þegar hún var handtekin, auk þess að vera með fölsk skílríki.
Carpenter, sem neitaði að taka áfengismælingu og féll á edrúmennskuprófi, var ákærð fyrir fjórar ákærur um líkamsárás af öðru stigi, vísvitandi hættu af fyrsta stigi, ölvunarakstur, gáleysisakstur og að hafa verið leyfð innganga undir 21 árs inn á staði þar sem áfengi er selt.

Hún var látin laus úr fangelsi sýslunnar eftir að hafa greitt 5.000 dollara tryggingu og hefur neitað sök í ákærunum. Dómari samþykkti beiðni ríkisins um að svipta hana ökuskírteini þar til málinu er lokið. Næsta réttarhöld hennar eru 14. apríl.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Sérfræðingar eru hreinskilnir – Svona lengi eiga samfarir að vara að meðaltali

Sérfræðingar eru hreinskilnir – Svona lengi eiga samfarir að vara að meðaltali
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sérfræðingur segir þessar reglur afgerandi fyrir gott hjónaband

Sérfræðingur segir þessar reglur afgerandi fyrir gott hjónaband
Pressan
Fyrir 2 dögum

Börn sem læra þetta snemma á lífsleiðinni ná góðum árangri í lífinu

Börn sem læra þetta snemma á lífsleiðinni ná góðum árangri í lífinu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sagt að hún væri geðveik þegar hún viðraði áhyggjur af undarlegum hljóðum á heimilinu – Síðan kom sannleikurinn í ljós

Sagt að hún væri geðveik þegar hún viðraði áhyggjur af undarlegum hljóðum á heimilinu – Síðan kom sannleikurinn í ljós