fbpx
Laugardagur 21.mars 2026
Pressan

Trump er með „dómsdagsflugvélina“ tilbúna

Pressan
Laugardaginn 21. mars 2026 19:00

Dómsdagsflugvélin tekur eldsneyti á flugi. Mynd: US Air Force

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Deilur, átök og stríð setja mark sitt á heiminn þessi misserin. Spennan á milli stórveldanna fer vaxandi og kannski þarf ekki mikið út af að bera til að allt fari á versta veg.

Það eru auðvitað til margar viðbragðsáætlanir um hvernig á að bregðast við ef einhverjar miklar hörmungar ríða yfir heimsbyggðina. Ladbible skýrir frá þessu og segir að nákvæmt áætlun sé til staðar hjá Bandaríkjamönnum varðandi forsetann og ríkisstjórnina.

Með þessu á að tryggja að ríkisstjórnin verði starfhæf við erfiðustu aðstæður, til dæmis stríð eða árás með kjarnorkuvopnum. Áætlunin nefnist COGCON (Continuity of Government Readiness Conditions).

Áætlunin er stigskipt, eftir alvarleika þess sem er í gangi, og segir til um hvernig ríkisstjórnin á að bregðast við margvíslegum aðstæðum.

Ef mjög alvarleg staða kemur upp, þá verður forsetinn strax fluttur á brott frá Washington. Fyrsta skrefið er að flytja hann til herstöðvar þar sem sérstök flugvél stendur tilbúin.

Þetta er E-4B National Airborne Operations Center. Þetta er mikið breytt Boeing 747 flugvél sem gegnir hlutverki fljúgandi stjórnstöðvar. Hún tekur eldsneyti á flugi og getur verið á lofti dögum saman ef aðstæður krefjast þess.

Þegar vélin lendir loksins er hægt að flytja forsetann í einhvert af þeim mörgu neðanjarðarbyrgjum sem eru í Bandaríkjunum. Heitustu áfangastaðirnir eru Mount Weather neðanjarðarbirgið við Camp David, sem er sumardvalarstaður forsetans, og Offutt Air Force Base í Nebraska.

Það eru síðan aðrar viðbragðsáætlanir fyrir varaforsetann og restina af ríkisstjórninni. Varaforsetinn og aðrir mikilvægir aðilar verða fluttir í örugga aðstöður svo hið pólitíska kerfi virki áfram ef ráðist verður á Washington D.C.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Ungur glímukappi tekinn af lífi

Ungur glímukappi tekinn af lífi
Pressan
Í gær

Hittler mætir Zielinski – „Það eina sem fólk hefur áhuga á eru nöfnin okkar“

Hittler mætir Zielinski – „Það eina sem fólk hefur áhuga á eru nöfnin okkar“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hvíta húsið skráir lénið Aliens.gov

Hvíta húsið skráir lénið Aliens.gov
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kona dæmd í fangelsi fyrir að saka tíu karla ranglega um nauðgun – Misstu vinnu og umgengni við börn sín

Kona dæmd í fangelsi fyrir að saka tíu karla ranglega um nauðgun – Misstu vinnu og umgengni við börn sín
Pressan
Fyrir 3 dögum

Telur að drápið í gær gæti aukið óstöðugleika í Íran og gert átökin hættulegri

Telur að drápið í gær gæti aukið óstöðugleika í Íran og gert átökin hættulegri
Pressan
Fyrir 3 dögum

Greindist með ólæknandi krabbamein, ferðaðist svo 5.800 kílómetra og myrti fyrrverandi tengdaföður sinn

Greindist með ólæknandi krabbamein, ferðaðist svo 5.800 kílómetra og myrti fyrrverandi tengdaföður sinn